Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Bocuse D'or
Í 20 ár hefur Bocuse d'Or náð að vera virtasta einstaklingskeppni í matreiðslu og er álitin vera Heimsmeistaramót í greininni, á 2ja ára fresti. Paul Bocuse, hinn þekkti kokkur frá Collonges við Lyon er upphafsmaður keppninnar eins og nafnið bendir til og eru nöfn verðlaunahafa öll skráð á skilti við veitingahúsið hans. Það er ekki sjálfgefið hverjir taka þátt í keppninni og löndin verða að vera samþykkt fyrst - Ísland tók fyrst þátt 1999 fyrir tilstuðlan Sturlu Birgissonar, þá kokkur í Perlunni, sem vann mikinn frumkvöðlastarf. Hann fékk glæsilegt 5. sæti sem kom öllum (sem ekki þekktu hann!) í opna skjöldu og þar með skráði Ísland á kortið í Bocuse d'Or. Hákon Már Örvarsson, þá á Hótel Holti, var næsti keppandi 2001. Eins og Sturla fór hann í þjálfunarbúðir hjá Philippe Girardon, eigandi Domaine de Clairefontaire fyrir sunnan Lyon og lagði ótrúlega mikið á sig - og uppskar eftir því: hann hefur hingað til náð lengst okkar manna, og fór á verðlaunapall með Bocuse de Bronze, 3. sæti (hann reyndar var ásamt Svíanum nr. 2 en þar sem ekki mega menn verða jafnir...). Björgvin Mýrdal var næstur 2003 og varð 9., svo Ragnar Ómarsson - þá á Hótel Holti einnig, sem náði 5. sæti. Merkilegt hefur þóst hversu hátt Norðurlandaþjóðir hafa náð í Bocuse d'Or, Frakkarnir hafa fengið 5 af 10 Bocuse d'Or en Norðmenn 3 og Svíar 1 (alls 12 verðlaunasæti alls fyrir Norðurlönd á móti 7 fyrir Frakkana!) - 10. Bocuse d'Or fékk Léa Linstner sem hefur margoft komið til Íslands. Friðrík Ingi Eiríksson er sem kunnugt er fulltrúi Íslands í ár og það verður sérstaklega spennandi að fylgjast með honum. Hann hefur sennilega fengið besta undirbúning allra: hann var aðstoðamaður Hákonar á Bocuse d'Or 2001 og hefur verið næstráðandi á eftir Philippe Girardon í Domaine de Clairefontaine síðan 2002. Friðgeir er vinnusamur, nákvæmur og að mörgu leyti mjög frumlegur og hugsar í aðrar víddir en margir. Það verða yfir 100 Íslendingar í Lyon til að láta heyra í sér og styðja hann - Dominique verður þeirra á meðal í boði Klúbbs Matreiðslumeistara sem hefur í mörgu veg og vanda að keppnisundirbúningi og mun hún senda pistla reglulega.
Fyrsti Pistill Dominique frá Bocuse D'Or
Þessi fyrsti pístill er skrifaður frá hótelherberginu í Lyon, þar sem 100 manna hópurinn er loks búinn að innrita sig (ég var síðust!). Við lentum á réttum tíma í 10° og þurftu menn að kvarta undan því - allt of heitt! Engar áhyggjur, veðurfræðingar hér spá kólnandi og jafnvel snjókomu um miðja viku - en hlýindi heima, hvað verður þá sagt??! Flugið var yndislegt. Þetta er vel í fyrsta skipti sem manni er boðið tvo matarbakka í þessu 4 klst flugi ! Stjórn Klúbbs Matreiðslumeistaranna stóð sig vel og tók sig líka vel út og var maturinn úr sama hráefni og þema ársins á Bocuse d'Or, lúðu og kjúkling. Namm. Flugfreyjurnar (tékkneskar) gerðu tilraun til að bjóða eigin matarbakka, sem án efa var í góðu lagi - en fengu mjög litlar (ef einvherjar) undirtektir. Við fengum einnig afhentan veglegan bakpoka merkta klúbbnum og í pokanum voru ýmsar nauðsynjar fyrir dagana framundan: sönghefti, víkingahúfa, íslenskur fáni, eyrnatappa og fl. Sumir fóru beint á sýninguna þar sem finnst allt (já allt) sem varðar hótel- og veitingahúsarekstur, hinir fóru á hótelið, sem er 4* gamaldags og sjarmerandi hótel í hjarta borgarinnar - svo er það handbolti, fótbolti eða einfalt rölt um Lyon. Ég spjalla betur um sýninguna SIRHA næst, því það er ekki eingöngu Bocuse d'Or sem mun vera haldin á þriðjudag og miðvikudag - hér er líka keppt í eftirréttagerð (heimsmeistaramót), brauðgerð (sama hér) og margt annað. Upphitun fyrir stóru keppnina? Dominique, Lyon.


