Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

27 sep. 2006 : Silfur Glæsilegur veitingastaður

Ég átti þess kost að borða á veitingastaðnum Silfur um síðustu helgi. Það kom mér reyndar ekki verulega á óvart að það varð hin mesta ævintýraferð bragðlaukanna. Við fengum fimm rétta ævintýramatseðil sem samanstóð af súpu, fiskréttum og kjötréttum, hvert öðru betra. Þessi staður lofar mjög góðu enda eru engir aukvisar að störfum í eldhúsinu. Matreiðslan bar keim af bræðingi, fusion, og ver einstaklega vel heppnað. Ég er þó ekki yfir mig hrifin af slíklri matargerð í sinni ýktustu mynd. Það er ánægjulegt til þess að vita að veitingahús leggi metnað í að vera með þjálfaða þjóna í salnum og var vel hægt að treysta vínþjóni hússins sem gaf góð ráð. Nokkuð sem oft verður misbrestur á. Matseðill og vínseðill voru vel útfærðir þótt enn beri nokkuð á stafsetningavillum.

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (412)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði