Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

27 sep. 2006 : Silfur Glæsilegur veitingastaður

Ég átti þess kost að borða á veitingastaðnum Silfur um síðustu helgi. Það kom mér reyndar ekki verulega á óvart að það varð hin mesta ævintýraferð bragðlaukanna. Við fengum fimm rétta ævintýramatseðil sem samanstóð af súpu, fiskréttum og kjötréttum, hvert öðru betra. Þessi staður lofar mjög góðu enda eru engir aukvisar að störfum í eldhúsinu. Matreiðslan bar keim af bræðingi, fusion, og ver einstaklega vel heppnað. Ég er þó ekki yfir mig hrifin af slíklri matargerð í sinni ýktustu mynd. Það er ánægjulegt til þess að vita að veitingahús leggi metnað í að vera með þjálfaða þjóna í salnum og var vel hægt að treysta vínþjóni hússins sem gaf góð ráð. Nokkuð sem oft verður misbrestur á. Matseðill og vínseðill voru vel útfærðir þótt enn beri nokkuð á stafsetningavillum.

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

7 sep. 2006 : Óvenjuleg brúðkaupsterta

meatcake01Ég þekki karlmenn (reyndar líka konur, en færri) sem eru ekkert mikið fyrir kökur. Þeir láta sig þó yfirleitt hafa það að fá sér sneið af sinni eigin brúðkaupstertu. Kæmust líklega ekki upp með annað. En ef ... tja, ef þið þekkið einhvern sem alls ekki væri fáanlegur til þess og er að fara að gifta sig, þá væri kannski möguleiki að baka svona tertu handa honum. Hún er nógu karlmannleg ...

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (3)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði