Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

27 júl. 2006 : Súkkulaðiskortur í vændum

Nú er illt í efni. Það kvað verða útlit fyrir súkkulaðiskort á næstu árum. Tveir ólíkir plöntusjúkdómar hafa lagst á kakóbaunarunna í Suður- og Mið-Ameríku að undanförnu og þegar hefur dregið úr kakóbaunaframleiðslu um 20% (á heimsvísu). Ef annarhvor sjúkdómurinn eða báðir berast til Afríku (Fílabeinsströndin er mesta kakóræktunarland heimsins), þá er voðinn vís.

Sumir vilja bregðast við með því að rækta fram erfðabreyttar kakóbaunir sem eru síður næmar fyrir þessum sjúkdómum en gegn því er þó mikil andstaða. Allavega gæti farið svo að gæðasúkkulaði yrði enn meiri lúxusvara en nú er.

Nanna

 

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (3)

27 júl. 2006 : Bannárin í Chicago

Það er vandlifað í Chicago. Þar má ekkert lengur. Látum vera þótt varla nokkurs staðar megi reykja (ég styð það reyndar) eða tala í farsíma á meðan maður keyrir. En að setja reglur um að það megi ekki nota nema einhverjar voða heilsusamlegar olíur (eða þannig) til að djúpsteikja mat þykir mér fulllangt gengið. Og að banna gæsalifrarkæfu ... nei, hættið nú.

Næst banna þeir örugglega hrossakjöt eins og er búið að gera í Kaliforníu.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (1)

27 júl. 2006 : Sænski kokkurinn

Sænski kokkurinn í Prúðuleikurunum á sér marga einlæga aðdáendur. Hér er hægt að sjá nokkur af gullkornum hans.

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði