Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

30 jún. 2006 : Eplakökuilmur

Ég var að lesa frétt um það að bandarísk hótelkeðja ætlaði að fara að nota eplakökuilm til að laða gesti að. Nú er eins víst að ég mundi falla fyrir ilm af eplum og kanel, en samt ...

Annars er það alþekkt saga að það gangi betur að selja íbúðir ef í þeim er freistandi bökunarilmur á meðan þær eru sýndar. Mér er sagt að jafnvel sé hægt að fá ilm af nýbökuðu brauði á úðabrúsa ... Það virkar kannski alveg, hver veit.

Fyrir fáeinum árum var nágrannakona mín að reyna að selja íbúðina sína. Hún ákvað að prófa piparkökuilm og bakaði piparkökur um hverja helgi, þar til íbúðin seldist. Það hefði átt vel við á jólaföstu en þetta var að vori til. Kannski eplakökur hefðu virkað betur.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (152)

29 jún. 2006 : 250 tonn af súkkulaði á haugana

Cadburys-verksmiðjan breska þarf á næstunni að finna leið til að eyða einni milljón súkkulaðistykkja sem voru innkölluð úr verslunum á dögunum eftir að grunur um salmonellumengun kom upp. Það sem gerðist var að vatnsrör fór að leka og eitthvað draup ofan á færiband. Ákveðið var að gæta fyllstu varúðar og innkalla allt súkkulaði sem framleitt hafði verið í þessari framleiðslulínu að undanförnu.

Hugsanlegt er að súkkulaðið verði grafið í jörð en einnig er talað um að bræða það, hita það að því marki að allir salmonellusýklar drepist, láta það brotna niður og nota það síðan í dýrafóður. En magnið sem þarf að losna við er töluvert - 250 tonn, samkvæmt frétt BBC.

Þetta er sorgarsaga.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

28 jún. 2006 : Kjötpúðar

slicedmeat_04Ég rakst á þessa óvenjulegu púða á síðu sem ég var að skoða. Kannski eitthvað til að gefa alvöru kjötætum ...

Ég held að það sé líka hægt að fá boli í stíl og kannski eitthvað fleira.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (213)

27 jún. 2006 : Heimsmeistaramótssalat

Ég þarf ekki að hafa fyrir því að útbúa heimsmeistaramótssnarl eða fótboltasnakk eða neitt slíkt. En ef ég þyrfti þess - og vildi vera heilsusamleg - og héldi með Englandi - þá er þetta sniðug hugmynd. (Sennilega er ekki skilyrði að halda með Englandi, það er sjálfsagt hægt að koma með aðrar útfærslur.)

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

27 jún. 2006 : Meistarakokkar elda fyrir börnin

Þetta er dálítið skemmtilegt: Þeir hjá Observer Food Monthly fengu nokkra þekkta breska matreiðslumeistara til að gefa uppskriftir að barnvænum réttum - eða gera barnvænar útgáfur af réttum sem þeir eru með á matseðlinum hjá sér. Ýmsar spennandi uppskriftir sem gaman væri að prófa.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (1012)

27 jún. 2006 : Sjálfhitandi

Í Bandaríkjunum er hægt að fá sjálfhitandi kaffi. Maður tekur bara lokið af dós, ýtir á ákveðinn blett og þá hitnar kaffið á nokkrum mínútum.

Reyndar fæst þetta kaffi kannski ekki lengur - það þurfti fyrir skemmstu að innkalla kaffidósirnar af því að þær höfðu eitthvað verið að springa í höndum viðskiptavina ...

En annars er líka hægt að fá sjálfhitandi mat. Sem geymist í allt að fimm ár (vonandi ekki haldið heitum allan tímann).

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (142)

27 jún. 2006 : Feitir og grannir kokkar

„Never trust a skinny chef“ (treystu aldrei grönnum kokki) var einhvern tíma sagt. Ef við gerum ráð fyrir að andstæðan eigi líka við, þá ætti að vera óhætt að treysta á nýja veitingastaðinn hans Eika. Við á Gestgjafanum erum reyndar ekki búnar að prófa hann ennþá.

Að vísu hljómar hamborgari sem heitir Eiki feiti - fullur af gumsi ekkert sérlega vel ...

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (208)

27 jún. 2006 : 100% súkkulaði

GE-0404-Valrhona2_sukkulÍ framhaldi af súkkulaðibúðingnum í gær - Flestir kannast sjálfsagt við 70% súkkulaði o.fl. og í sérverslunum hér (t.d. Vínberinu) er hægt að fá 77% súkkulaði og jafnvel 85% súkkulaði ef ég man rétt - en vinnufélagi minn var áðan að gefa mér að smakka 100% súkkulaði sem honum hafði verið fært frá Ítalíu.

100% súkkulaði þýðir að það er ekki eitt korn af sykri í súkkulaðinu, eingöngu kakómassi og kakósmjör. Þetta er mjög sérstakt súkkulaði, svolítið þurrt og beiskt en bragðið er mjög hreint og eftirbragðið sérlega sterkt. Ekki súkkulaði sem maður borðar eintómt (en reyndist fara nokkuð vel með kaffisopa) en ætti að vera fínt í ýmiss konar ábætisrétti, kökur og konfekt. Og auðvitað gott fyrir þá sem vilja forðast allan sykur.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

26 jún. 2006 : Súkkulaðibúðingsdagurinn

Vissuð þið að í dag er Súkkulaðibúðingsdagurinn (National Chocolate Pudding Day) í Bandaríkjunum?

Mig langar reyndar ekkert sérstaklega mikið í súkkulaðibúðing núna en það er kannski af því að ég var rétt að enda við að gæða mér á ýmsum kræsingum sem hún Sóla bauð upp á í Gestgjafaeldhúsinu og þið munuð fá uppskriftir að í síðsumarsblaði Gestgjafans, sem kemur út í ágústbyrjun. Þátturinn hennar er með berjaþema - jú, og reyndar kom súkkulaðibúðingur ögn við sögu. Ber og súkkulaði eiga nefnilega alveg ljómandi vel saman.

Mig langar eiginlega meira í ís í kvöld, jafnvel þótt sólin sé ekkert að glenna sig. Hmm, kannski ég slái bara tvær flugur í einu höggi og búi  til súkkulaðiís. Með hindberjum.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

23 jún. 2006 : Skínandi Silfur

Það var opnunarteiti á Silfri í gær (nýja veitingastaðnum á Hótel Borg) og auðvitað mættum við af Gestgjafanum þar. Staðurinn virtist hinn glæsilegasti en reyndar var svo fjölmennt að maður fékk ekki almennilega yfirsýn. Í fljótu bragði virtist þó sem þarna hefði ljómandi vel tekist að samræma gamlan glæsileika Borgarinnar og nýtískulegt útlit. En það verður gaman að koma þarna þegar færra fólk er á staðnum.

Auðvitað voru veitingar á borðum, ostrur, pinnamatur og margt fleira, auk víns og annarra veiga. En seinna um kvöldið var okkur boðið að koma inn í eldhús og fá að smakka ýmsa af réttunum á matseðlinum og þar er óhætt að segja að kokkarnir fengu að sýna hvað þeir geta. Við smökkuðum m.a. sjávarfangssúpu, humar í fjórum útfærslum, snjókrabbamauk, dúfu, lambasteik, nautalund ... hvert öðru betra og flottara. Ekki feilnóta í þessum samsetningum. Svo kom röðin að eftirréttunum - við smökkuðum þrjá og þeir voru allir frábærir - snickers-eftirréttur (nei, auðvitað ekki gerður úr Snickers), pannacotta með mangó og kókos og tiramisú-útfærsla sem var þvílík himnasæla að við Gestgjafakonur máttum varla vatni halda - og ég komst reyndar að því seinna um kvöldið að hrifningin var ekki eingöngu bundin við kvenþjóðina.

Ég hlakka mikið til að fara á Silfur sem gestur og prófa óvissuferðina þeirra, fimm (eða sjö) rétti eftir vali kokksins. - Já, yfirkokkurinn á Silfri er Þórarinn Eggertsson, matreiðslumeistari ársins 2005 og mér sýndist hann vera með býsna gott lið í eldhúsinu með sér. Þjónaliðið lofar líka góðu og vínseðillinn virtist álitlegur, að mati þeirrar okkar Gestgjafakvenna sem hefur vit á vínum.

Eina atriðið sem ég sá sem ekki var í lagi var matseðillinn, það hefði þurft að prófarkalesa hann betur. Reyndar lofsvert að þarna er greinilega lögð áhersla á að nota íslensk hráefnisheiti og ekkert verið að vesenast með erlend hugtök og gæsalappir og slíkt - en stafsetninguna þarf að laga. (Undirrituð bendir á að hún er alveg til í að taka slík verkefni að sér ...)

Sem sagt, okkur líst vel á Silfur og þetta verður örugglega mjög vinsæll staður í sumar. Það verður gaman að fylgjast með hvernig gengur og hvort tekst að halda dampi, í eldhúsinu og utan þess.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (15)

22 jún. 2006 : Ekki alveg í lagi

Við á Gestgjafanum fórum á Óliver í hádeginu; langaði að geta setið einhvers staðar úti og það var allt fullt á Vegamótum. Biðum í 45 mínútur eftir matnum okkar. Fólkið á næsta borði kom 10 mínútum á eftir okkur en fékk þó matinn sinn 10 mínútum á undan okkur. Sem hefði kannski verið afsakanlegt ef við hefðum verið með eitthvað sem tók langan tíma að elda. En nei, þau voru með hamborgara og fleira heitt; við vorum með kjúklingasalat með köldum kjúklingi og beyglur með köldum kjúklingi. Salatblöndu úr poka og tilbúnar sósur. Eina eldamennskan var að rista beyglurnar og það hefði tekið mig innan við fimm mínútur að setja alla réttina fjóra saman. Dressinguna vantaði alveg á salatið með beyglunni minni; ég kvartaði en það tók 5 mínútur að fá dressingu á borðið og þá var ég auðvitað nærri búin með beygluna, enda vorum við orðin sársvöng af biðinni. Þegar þjónustustúlkan tók af borðinu missti hún hníf ofan á eina samstarfskonu mína og það fór sinnepssósa í fötin hennar.

Við vorum ekki beðin afsökunar. Þaðan af síður var boðið upp á afslátt af reikningnum, frítt kaffi eða eitthvað slíkt. Sem ætti eiginlega að vera sjálfsagt mál þegar mistök verða í eldhúsi eða þjónustu. Ég held allavega að við förum eitthvað annað næst ...

Nanna

 

 

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (152)

22 jún. 2006 : Bananaþeytingur

Svaladrykkurinn sem mig langar í akkúrat núna er svona:

 

Bananaþeytingur

1 dós hrein jógúrt

1 banani, vel þroskaður

2-3 tsk þunnt hunang (gjarna appelsínublómahunang en ekki skilyrði)

nokkrir muldir klakamolar

örlítið nýrifið múskat (má sleppa)

Allt sett í blandara og þeytt vel saman.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (140)

22 jún. 2006 : Tony er á lausu ...

GE-0504-21-01_3Ég rakst á skemmtilegt viðtal (eða ,,spurt og svarað") við kokkinn, rithöfundinn og sjónvarpsmanninn Anthony Bourdain. Ég tók viðtal við hann fyrir Gestgjafann þegar hann kom hingað í fyrra og hef verið ástfangin af honum síðan. Flottur gæi.

Og nú er hann á lausu.

Ég get líka alveg mælt með flestum bókunum hans - matreiðslubókinni Les Halles Cookbook, sem ég tími reyndar aldrei að nota af því að hún er með svo flottri áritun, Kitchen Confidential, sem gerði hann frægan, nýju bókinni The Nasty Bits, - já, og glæpareyfurunum hans, einkum Bone in the Throat.

Nanna

 

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (195)

22 jún. 2006 : Spaghetti carbonara

Einn af réttunum sem boðið er upp á í hádeginu hér í vinnunni (kemur í bakka utan úr bæ) er spaghetti carbonara „með skinku, pepperóní, grænmeti og rösti-kartöflum". Hmm. Mér finnst spaghetti carbonara æðislegur matur en einhvern veginn langar mig ekki beint í þetta, síst eftir að það er búið að liggja í hálftíma til klukkutíma í bakkanum.

Ef ég væri að gera spaghetti carbonara mundi ég bara nota egg, nýrifinn parmesanost, nýmalaðan pipar, gott beikon, svolitla ólífuolíu, hvítlauksgeira og smáskvettu af hvítvíni ef ég ætti það til. Borið fram samstundis. Og engar röstikartöflur, takk. Mér þykir alvöru rösti gott en ég efast ögn um að það sé í boði í þessu tilviki ...

Ég hugsa að ég fari út að borða í hádeginu. Ég er heldur ekki í skapi fyrir steiktan fisk með kokkteilsósu. Og það viðrar ekki til þess.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

22 jún. 2006 : Bangsi svarar fyrir sig

Þið kannist við söguna um Gullbrá og birnina þrjá, þar sem Gullbrá settist niður í húsi bjarnanna og borðaði allan grautinn hans Bangsa litla. En þetta snerist við í útborg Vancouver nýlega, þar sem ungt bjarndýr - kannski Bangsi litli í hefndarhug - fór inn í hús og þar var komið að honum að háma í sig hafragraut.

Og ef ég man rétt braut Gullbrá stólinn hans Bangsa litla. Þessi bangsi braut reyndar ekki stól en hann mölvaði leirskál ...

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (106)

22 jún. 2006 : Íslenskt smjör á amazon.com

Íslendingar í Bandaríkjunum, sem saknað hafa smjörsins að heiman, geta nú glaðst yfir því að hægt er að panta sér íslenskt smjör frá www.igourmet.com (og reyndar einnig gegnum www.amazon.com). Smjörið er reyndar ekki gefið, kostar sjö dollara pundið auk sendingarkostnaðar - en greinilegt að ýmsum finnst það peninganna virði. Athugið þó að þarna er einungis um að ræða ósaltað smjör.

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

20 jún. 2006 : Kokkurinn kvænist

Hann Völli Snær, Bahamakokkurinn sem um þessar mundir er að kenna okkur að grilla alls kyns góðgæti í sjónvarpinu, ætlar að giftast henni Þóru sinni, sem allir þekkja úr Stundinni okkar, núna um helgina. Gestgjafinn verður á staðnum til að taka út veitingarnar ...

Þið fáið svo að sjá dýrðina í Gestgjafanum. Skyldi brúðkaupsferðin verða farin til Bahamaeyja?

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (163)

20 jún. 2006 : Uppeldi og offita

Samkvæmt því sem segir hér er mun líklegra að börn foreldra sem eru strangir uppalendur verði of feit en börn foreldra sem eru sveigjanlegri en setja börnum sínum þó ákveðnar reglur. Ef börnin fá aftur á móti að komast upp með hvað sem er, þá er ekki ólíklegt að þau verði þybbin, en þó eru slík börn mun síður líkleg til að verða of þung en börn ströngu foreldranna.

Vísindamennirnir sem gerðu rannsóknina segjast ekki vissir um hvað valdi en hugsanlegt sé að börn sem búa við mjög strangar reglur verði frekar fyrir streituáhrifum og leiti í mat sér til huggunar.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

19 jún. 2006 : Bleikur dagur

GE-0507-51-03_319. júní er kvenréttindadagurinn og femínistar hvetja alla til að klæðast bleiku. Það er allavega bleikt í mynstrinu á peysunni minni ...

En það er hægt að sýna bleika litinn víðar. Hvernig væri að baka köku eða gera múffur með bleiku kremi? Búa til skærbleikan jarðarberjabúðing, ís eða bara jarðarberjahristing (sjeik)? Fagurbleikt rauðrófusalat? Eða matreiða gómsætan silung eða lax? Kannski ekki alveg rétti bleiki liturinn en það má taka viljann fyrir verkið.

Bleikur dúkur á borðinu, bleik blóm í vasa, jafnvel bleik kerti ... Jú, það er hægt að sýna femínísku hliðarnar á sér á ýmsan hátt.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

19 jún. 2006 : Í vætutíð

Það er spáð betri tíð með blóm í haga á næstunni - enda ekki vanþörf á, hér á suðvesturhorninu hefur rigningin verið að plaga okkur allan júnímánuð. Eins og fram kemur á forsíðu hefur þetta þó ekki haft áhrif á sölu á grillblaðinu - eða kannski blaðið hafi aðallega verið að seljast fyrir norðan og austan, þar sem veðrið hefur leikið við fólk?

Við hér á Gestgjafanum þurfum alltaf að vera einum til tveimur mánuðum á undan tímanum af því að við erum að undirbúa blað fram í tímann. Eigum reyndar eftir eina útimyndatöku fyrir júlíblaðið sem erfiðlega hefur gengið að koma á því að það hefur rignt upp á hvern dag. Nú er reyndar spáð góðviðri - á miðvikudaginn, einmitt daginn sem blaðið fer í prentun. Ekki dugir það.

Við erum samt búin að leysa málið og myndirnar verða teknar í dag, hvað sem tautar og raular. Það verður allavega sól í sinni á myndunum, hvað sem um ytra útlitið er að segja ...

Nanna

 

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði