Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

19 apr. 2006 : Páska-mezze

Ég og dótturdóttirin eyddum páskunum í London í góðu yfirlæti (fyrir utan smáhnökra þegar hraðbankar vildu ekki taka við debetkortinu mínu og verslanir og veitingahús vildu ekki kreditkortið af því að ég var ekki með PIN-númerið - við héldum um tíma að við yrðum að lifa í fjóra daga á páskaeggi barnabarnsins en þetta bjargaðist til allrar hamingju. Athugið að þessi mál séu í lagi ef þið eruð að leið til Englands, það eru ekki allir sem hafa stórt páskaegg í bakhöndinni ef annað bregst).

Páskamáltíðin okkar var átta eða tíu rétta mezze á líbönskum veitingastað í Paddington. Kjúklingavængir, falafel, kjötbollur, tabbouleh, eggaldinídýfa og fleira góðgæti. Alveg ágætt og bærilega páskalegt. Svo fórum við í dýragarðinn á eftir og eyddum mestöllum deginum þar. Við vorum bara mjög sáttar við þessa páska.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

10 apr. 2006 : Páskar í London

GE-0503-01-17_3Ég er að fara til London á miðvikudaginn og verð þar í nokkra daga. Eins og alltaf er hluti af tilgangi ferðarinnar að fara út að borða á nýjum stöðum. Það er enginn skortur á góðum veitingahúsum í London og vandi að velja en í þetta skipti eru valinu settar heldur þrengri skorður en venjulega, þar sem ferðafélagi minn er tólf ára og rétt að byrja að vera ævintýragjörn í matarvali - vill t.d. alls ekki mikið kryddaðan mat þannig að við sleppum indverskum stöðum í þetta skipti.

Annað sem hafa þurfti í huga er að margir veitingastaðir eru lokaðir alla páskahelgina og þeir sem eru opnir eru þá e.t.v. uppbókaðir snemma. Mér finnst gott að panta í gegnum bókunarþjónustu Toptable; ég hafði t.d. pantað borð á litlu, ítölsku veitingahúsi sem ég hef heyrt látið vel af og fengið staðfestingu á pöntuninni en klukkutíma síðar var hringt frá Toptable og mér sagt að veitingahúsinu hefði láðst að láta þau vita að þar yrði lokað um páskana og ég beðin margfaldlega afsökunar.

Annar vefur sem gott er að skoða er London Eating. Þar eru ítarlegri umsagnir en hjá Toptable og þegar ég er búin að finna veitingahús sem mér líst á skoða ég það gjarna á báðum stöðum og panta svo í gegnum Toptable.

Ég skal svo gefa skýrslu um veitingahúsin sem ég valdi þegar ég kem aftur ...

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

10 apr. 2006 : Hversdagsmaturinn

Það tók allan þennan tíma að jafna sig eftir matarsýninguna ... Nei, í alvöru, þá var Matur 2006 skemmtileg upplifun eins og þessar sýningar eru alltaf en það var svo sannarlega nóg að gera og nóg að smakka og við starfsmenn Gestgjafans vorum satt að segja eins og sprungnar blöðrur á eftir. Svo tók hversdagsleikinn við - í bókstaflegri merkingu, því að næsta tölublað, sem við erum að leggja lokahönd á, verður tileinkað hversdagsmatnum.

Það er vandi að halda veislur og kostar oft mikil heilabrot og vangaveltur um hvað eigi að vera í matinn og hvernig eigi að elda það. En þegar málið er skoðað betur, þá fer auðvitað miklu lengri tími í að upphugsa hversdagsmatinn - einfaldlega vegna þess að hann erum við jú að elda næstum á hverjum degi og ef við viljum einhverja fjölbreytni þarf oft að leita að nýjum hugmyndum og uppskriftum. Markmið okkar með þessu hversdagsréttablaði er einmitt að gefa hugmyndir um eitthvað nýtt - eða gamalt í nýjum búningi.

Ég hef stundum sagt það, meira í alvöru en gamni, að hluta af matargerðaráhuga mínum megi skrifa á reikning barna minna og þess hve ósammála þau voru alltaf um hvað ætti að vera í kvöldmatinn. Um tíma var dóttirinn t.d. grænmetisæta en sonurinn vildi helst ekkert nema kjöt. Ég var þess vegna alltaf að reyna að leita að einhverju nýju, einhverju sem þau gætu bæði verið sátt við - að minnsta kosti nógu sátt til að borða það - og út úr þeim pælingum komu alls konar hugmyndir og uppskriftir.

Matarsmekkur barnanna minna hefur reyndar orðið líkari með árunum - og þau borða bæði flest það sem fyrir þau er sett - en nú eru það barnabörnin sem ég er að reyna að gera til hæfis. Þau eru ekkert auðveldari.

Það gerir lífið skemmtilegra.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði