Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

30 mar. 2006 : Gestgjafinn flytur ... í fjóra daga

GE-0505-37-01_3Segja má að Gestgjafinn flytji sig um set yfir í Kópavog nætu dagana, því að allir blaðamennirnir verða á sýningunni Matur 2006, þar sem Gestgjafinn er með stóran bás. Í básnum verða alltaf einhverjir blaðamenn tilbúnir að svara spurningum og leysa úr erindum og við munum líka bjóða þeim sem líta við upp á eitthvert góðgæti.

Svo verðum við á rölti á sýningarsvæðinu, fylgjumst með því sem er að gerast og fleira. Þarna eru ýmsar skemmtilegar keppnir í gangi, svo sem uppþvottakeppni og ostrukeppni. Matreiðslumenn keppa um titilinn Matreiðslumaður ársins. Fulltrúi Íslands, Þórarinn Eggertsson, sem sjá má á myndinni hér til hliðar taka við viðurkenningu sem Matreiðslumaður ársins 2005, keppir um titilinn Matreiðslumaður Norðurlanda. Kokkanemar, framreiðslunemar og kjötskurðarmenn keppa um Íslandsmeistaratitla og þarna er líka álfukeppni þar sem erlendir matreiðslumenn keppa sín á milli og margt fleira.

Ekki má gleyma kaffibarþjónakeppninni, en ég hef reyndar sérstakan áhuga á henni í ár þar sem sonur minn ætlar að spreyta sig og ég er hrædd um að ég verði ekki alveg hlutlaus - ég er að minnsta kosti búin að biðja um að einhver annar skrifi um þá keppni í blaðið ...

Hátíðin Food and Fun var haldin í Reykjavík á dögunum eins og flestir vita. En reyndin er sú að það er ekki minna um „fæðu og fjör“ í Kópavoginum þá daga sem Matar-sýningin stendur yfir. Hún er reyndar bara annað hvert ár en Friðrik V. Karlsson og félagar hans fyrir norðan stefna að því að gera sýninguna Matur-inn, sem haldin var í fyrsta skipti á Akureyri í fyrra og verður aftur að ári, að mótvægi við sýninguna í Fífunni og það verður gaman að fylgjast með hvernig til tekst. - Þess má annars geta að Friðrik og flestir sem tóku þátt í Matur-inn fyrir norðan eru með sérstakan, stóran Norðurlandsbás á sýningunni og þið skuluð endilega líta inn til þeirra þar.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

22 mar. 2006 : Laukur lífsins

GE-0501-03-02_3Lífið er eins og laukur; maður flysjar burt eitt og eitt lag í einu og kemst á endanum að því að það er enginn kjarni. Og stundum grætur maður.

Það má kannski deila um samlíkinguna en hitt er víst að ég á afskaplega erfitt með að hugsa mér lífið án lauks. Laukur er bæði grænmeti og krydd - líklega ódýrasta grænmeti og ódýrasta krydd sem til er. Það er hægt að gera alls konar kræsingar úr lauk og hann er ómissandi undirstaða í ótal réttum, frábær viðbót við aðra.

Laukur hefur líka fylgt mannkyninu frá því að sögur hófust og jafnvel lengur. Elstu mataruppskriftir sem vitað er um eru á leirtöflum frá tímum Súmera, 4-5000 ára gamlar. Þær fundust í Írak á síðustu öld og nú hefur tekist að túlka þær að mestu. Laukur af ýmsum tegundum er uppistaðan í mörgum þessara uppskrifta.

Ég veit að ýmsir borða ekki lauk, eða segjast ekki gera það. Þó hef ég grun um að margir þeirra sömu mundu sakna laukbragðsins töluvert ef allur laukur hyrfi raunverulega úr fæðu þeirra því að líklega eru margir sem gera sér ekki grein fyrir því hvað laukur er notaður víða.

Ég er að hugsa um að elda mér lauksúpu í kvöldmatinn. Það má finna nokkrar uppskriftir hér í uppskriftasafninu hér á vefnum.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (3)

21 mar. 2006 : Kaffi eða kók?

coca-cola-blak-bottlesVissuð þið að það er nýr kókdrykkur á leiðinni á markað? Allavega í Bandaríkjunum; spurning hvort og þá hvenær hann verður markaðssettur hér. Þessi drykkur kallast Coca Cola Blak og er kók bragðbætt með kaffi-essens. Drykkurinn á að koma á markað í Bandaríkjunum 4. apríl næstkomandi og verður kynntur sem örvandi hressingardrykkur fyrir fullorðna. Hann á að vera tiltölulega hitaeiningasnauður.

Gaman verður að sjá hvort þessi drykkur gengur betur en ýmsar aðrar tilraunir sem Coca Cola-verksmiðjurnar hafa gert á undanförnum árum. Pepsi, Starbucks og fleiri munu reyndar áður hafa gert tilraunir með kóla-kaffidrykki sem ekki hafa tekist vel.

Sjálf lendi ég afar sjaldan í þeirri aðstöðu að vera í vafa um hvort ég eigi að fá mér kók eða kaffi að drekka. En svona drykkur mundi jú vissulega leysa öll slík vandamál í eitt skipti fyrir öll.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

21 mar. 2006 : Besti indverski maturinn er í Reykjavík

Leikarinn Harrison Ford segir í viðtali við breska blaðið Sunday Times að hann hafi fengið bestu indversku máltíð ævi sinnar á veitingastað í Reykjavík í fyrrasumar. Hann kom hér við ásamt Calista Flockhart, vinkonu sinni, á leið til Englands og mun hafa borðað á Austur-Indíafélaginu.

Hver veit, kannski munu breskir og bandarískir ferðamenn flykkjast hingað í sumar í leit að indverskum matarlystisemdum.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

20 mar. 2006 : Fyrsti vordagurinn?

GE-0506-53-03_3Dagurinn í dag telst víst vera fyrsti vordagurinn í enskumælandi löndum, eða allavega í Bandaríkjunum. Ég segi nú ekki að það sé beint vorlegt að horfa út um gluggann hér á Höfðabakkanum en veðrið síðustu dagana hefur þó minnt á að vorið sé í aðsigi ... eftir svona einn eða tvo mánuði. Einhverjir hafa meira að segja áreiðanlega dregið fram grillið um helgina og grillað eitthvert góðgæti.

Þar til fyrir tveimur árum kom grillblað Gestgjafans út í byrjun maí og það þýddi að við vorum að byrja að undirbúa það einmitt um þetta leyti, seint í mars. Það var ekki alltaf sérlega vorlegt þegar við vorum að mynda úti á svölum, hitinn kannski við frostmark ... Nú kemur grillblaðið út um mánaðamótin maí-júní, sem er mun skaplegri tími, allavega hvað varðar eldamennskuna. Ívið minni líkur á að það þurfi að sæta færi til að mynda á milli élja.

En okkur hefur þó oft tekist bærilega að láta líta út fyrir að myndirnar séu teknar á sólheitum sumardegi þótt raunin hafi verið allt önnur. Það vill líka svo til að svalirnar mínar eru einhver sólríkasti og skjólsælasti staðurinn í Reykjavík.

Mikið er ég samt fegin að við erum ekki að fara að undirbúa grillblaðið fyrr en eftir páska.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

20 mar. 2006 : Ný sýn á matinn ...

Þið verðið að afsaka innsláttarvillur sem hugsanlega kunna að laumast hér inn á næstunni, ég var að koma úr sjónlagsaðgerð (leysiaðgerð á augum) og þótt nærsýnin sem ég hef þurft að búa við frá því að ég man fyrst eftir mér hafi horfið eins og dögg fyrir sólu sé ég ekki eins vel nærri mér og áður -þ.e. aldursfjarsýnin er farin að láta á sér kræla og ég þarf að venjast því. Aftur á móti er frábært að geta horft ofan í pottana án þess að gufan setjist á gleraugun ...

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

16 mar. 2006 : Michelin-höfuðborg Norðurlanda

Ætli sé ekki óhætt að kalla Kaupmannahöfn Michelin-höfuðborg Norðurlanda að minnsta kosti? Veitingahús sem skarta Michelin-stjörnum eru nú orðin tíu í borginni og nokkrir aðrir staðir eru taldir vera mjög stutt frá því að komast í þann flokk. Veitingahúsið Pierre Andre missti reyndar stjörnuna sem það fékk í fyrra aftur nú í ár og Ensemble missti stjörnu númer tvö en heldur þó einni. Annars eru Michelin-staðirnir í Kaupmannahöfn þessir:

Ensemble, Tordenskjoldsgade 11, s. 33 11 33 52

Era Ora, Overgaden neden Vandet 33B, s. 32 54 06 93

Formel B, Vesterbrogade 182, s. 33 25 10 66

Godt, Gothersgade 38, s. 33 15 21 22

Kokkeriet, Kronprinsessegade 64, s. 33 15 27 77

Kommandanten, Ny Adelgade 7, s. 33 12 09 90

Kong Hans Kælder, Vingårdsstræde 6, s. 33 11 68 68

Noma, Strandgade 93, s. 32 96 32 97

Rasmus Oubæk, Store Kongensgade 52. s. 33 32 32 09

The Paul, Tívolí, s. 33 75 07 75

Nanna

 

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

16 mar. 2006 : Stærsta Matar-sýningin

Gestgjafinn verður auðvitað á sýningunni Matur 2006, sem haldin verður í Smáralind 30. mars til 2. apríl næstkomandi. Við höfum verið með bás á öllum Matar-sýningunum sem haldnar hafa verið og það breytist ekkert, enda eru þessar sýningar mikill viðburður fyrir allt mataráhugafólk.

Sýningin í ár verður stærri en nokkru sinni fyrr og okkur sýnist að hún muni verða mjög spennandi. Bæði verða öll helstu fyrirtæki í matargeiranum - stór og smá - þar að kynna sig og sína starfsemi og svo verða alls konar viðburðir og uppákomur í tengslum við sýninguna. Helst er þar auðvitað að nefna keppnina um Matreiðslumann ársins og Matreiðslumeistarakeppni Norðurlanda en einnig ýmsar aðrar keppnir, svo sem Íslandsmeistarakeppni í uppþvotti.´

Íslandsmeistarakeppni kaffibarþjóna verður einnig haldin á sýningunni og hefur verið útbúið sérstakt svæði fyrir hana. Ég kem til með að fylgjast sérstaklega með þeirri keppni, ekki vegna þess að ég hafi meiri áhuga á keppni en mat, heldur vegna þess að sonur minn ætlar að spreyta sig á þeim vettvangi ...

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (1)

16 mar. 2006 : Matarannir

Síðasta vika er búin að vera býsna annasöm hér hjá okkur. Við erum á fullu að undirbúa veislublaðið, sem á að koma út um mánaðamótin, og ég er búin að elda eða útbúa hátt í þrjátíu rétti fyrir myndatöku síðan á miðvikudaginn var. Nóg að gera semsagt - og nóg að smakka fyrri vinnufélagana, þeir kvarta ekki.

Við verðum með mikið af smáréttum, forréttum og pinnamat í blaðinu þannig að þeir sem eru að undirbúa veislur - fermingarveislur, útskriftarveislur, brúðkaupsveislur, afmæli og annað - ættu að geta fundið eitthvað fyrir sig. Auðvitað verða svo kökur og eftirréttir líka en sjálf kem ég ekki nálægt sætmetinu í þessu blaði, læt öðrum blaðamönnum það eftir.

Ég er hins vegar með Korter í kvöldmat eins og venjulega - fannst ótækt að láta það víkja fyrir veislumatnum því að jafnvel þótt fólk sé að halda veislur þarf að elda hversdagsmat fyrir fjölskylduna.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (2)

8 mar. 2006 : Gestgjafinn í bítið

Ef þið voruð að horfa á Ísland í bítið í morgun hafið þið kannski séð þau Guðrúnu Hrund, ritstjórnarfulltrúa Gestgjafans, og Albert, nýja blaðamanninn okkar, kynna Miðjarðarhafsblaðið. Ég er einmitt núna að borða brauð með tapenade-maukinu sem þau voru með í þættinum - mmm ... og svakalega einfalt að gera það.

Sumir stoppa kannski við þegar þeir sjá ansjósur í uppskriftinni því að það er nokkuð sem virðist falla illa að smekk margra Íslendinga. En verið alveg ósmeyk; það er ekkert ansjósubragð af tapenade-inu. Gott tapenade er dæmi um blöndu þar sem nokkur bragðsterk hráefni renna saman í eina frábæra heild.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (2)

7 mar. 2006 : Nýr blaðamaður á Gestgjafanum

Við á Gestgjafanum vorum að ráða nýjan blaðamann til starfa og að þessu sinni varð ungur karlmaður fyrir valinu. Þótt konur á besta aldri hafi að vísu lengi verið áberandi í Gestgjafahópnum hafa nokkrar ungar konur einnig verið við störf hjá okkur - en karlmaður hefur líklega ekki verið fastráðinn við blaðið síðan á dögum Hilmars B. Jónssonar fyrir hátt í 20 árum. Það verður því gaman að sjá hverju þetta breytir. Karlmönnum fjölgar stöðugt í hópi áskrifenda og lesenda blaðsins og tími til kominn að bregðast við því.

Nýi blaðamaðurinn okkar heitir Albert Steinn Guðjónsson, heimspekimenntaður og mikill áhugamaður um mat og matargerð frá blautu barnsbeini. Við hlökkum til að vinna með honum og fá karlmannlegt sjónarhorn á hlutina ...

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

7 mar. 2006 : Argan og flensa

Flensan (eða einhver ámóta pest) er búin að vera að hrjá mig að undanförnu eins og ýmsa fleiri og ég sit hér hóstandi og hnerrandi við tölvuna. Búin að vera að hressa mig á sítrónu- og engiferseyði undanfarna daga en hráefnið í það er því miður ekki til hér þessa stundina og ekki er ég að fara út í rigninguna að sækja það. Svo að eitthvað annað verður að duga.

Reyndar var verið að gefa mér svolitla lögg af marokkóskri arganolíu sem er kannski allra meina bót - best að athuga á eftir hvort hún dugir á særindi í hálsi og slappleika. Reyndar getur verið að hvítlauks- og chiliolían frá il Nutrimento, sem ég er líka með hér á skrifborðinu, dugi ekki síður - bragðið af henni ætti allavega að hressa mig við.

Arganolía er annars mjög áhugaverð olía sem hefur komist í tísku á undanförnum 1-2 árum. Hún er unnin úr hnetum argantrésins, sem eingöngu vex í Suður-Marokkó og var lítt þekkt utan þess svæðis til skamms tíma. Hún er dýr, enda erfið í vinnslu og það er sagt að þurfi 20 klukkustunda vinnu til að framleiða einn lítra af olíu. Bragðið er hnetukennt og nokkuð sérstakt og olían er aðallega notuð til að bragðbæta salöt, kúskús o.fl., svo og sem ídýfa fyrir brauð.

Ég hlakka til að gera tilraunir með hana.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (3)

2 mar. 2006 : Kræsingar í vændum

Nú er veislublaðið í undirbúningi hjá okkur á Gestgjafanum. Reyndar er þetta veislu- og brúðkaupsblað en við látum brúðkaupshlutann að mestu í hendurnar á öðrum, enda engin okkar í brúðkaupshugleiðingum og meirihlutinn lausar og liðugar. Ritstjóri sérrita hjá Fróða er aftur á móti nýgift og sæl og það þykir því tilvalið að láta hana stýra brúðkaupshlutanum.

Við hinar verðum aftur á móti með veitingar sem hægt er að nota í alls konar veislur - brúðkaupsveislur líka - bæði fínar og formlegar stórveislur, einföld og óformleg matarboð og allt þar á milli.

En það verður nóg af kræsingum úr tilraunaeldhúsi Gestgjafans á borðum hér á næstunni fyrir vinnufélagana.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

2 mar. 2006 : Baunasúpuafgangur í nýjum búningi

Ég frískaði upp á afganginn af baunasúpunni í gærkvöldi - allt kjötið var búið en ég setti súpuna, rófurnar, gulræturnar og kartöflurnar í matvinnsluvél og maukaði það ásamt smábita af chorizo-pylsu (pepperoni hefði líka verið fín), setti þetta svo í pott, kryddaði með kummini, papriku og svolitlu óreganó og hitaði vel. Kom mjög vel út. Þannig að ef þið eigið enn afgang af súpu er tilvalið að gera eitthvað svona. Líka tilvalið að saxa svolítið spínat út í.

Nanna

 

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (1)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði