Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Kaffi, súkkulaði og karlmenn
Coffee, Chocolate, Men ... Some things are just better rich.
Þetta datt mér í hug þegar ég fékk mér óvart of þunnt kaffi áðan. Ég veit ekki eftir hverri þetta er upphaflega haft en það hefur verið smekkmanneskja. Og svo sit ég hér og horfi á hrikalega girnilega súkkulaðiköku, því miður (eða sem betur fer) bara á mynd í matarblaði.
Og þetta með karlmennina er nú alveg augljóst.
Nanna
Baunir í bleyti?
Nei, það er ekki nokkur ástæða til að panikera þótt þið hafið gleymt að leggja baunirnar í bleyti í morgun. Það er nefnilega engin þörf á því. Ég hef aldrei í öllum mínum búskap lagt gular baunir í bleyti. Það stendur líka á umbúðunum á flestum tegundum að þess þurfi ekki.
Nanna
Bolla, bolla ...
Það er víst bolludagurinn í dag og flestir áreiðanlega búnir að fá nægju sína af bollum - jafnvel strax í gær, því að hjá mörgum er aðalbolludagurinn á sunnudeginum. Þetta gildir áreiðanlega ekki síst hjá þeim sem baka bollurnar sínar sjálfir. Ég hélt mitt bollukaffi í gær, bakaði einar 75 bollur með barnabörnunum, og það eru ekki margar eftir núna.
Ég gerði það reyndar viljandi að hafa bollurnar minni um sig en oft áður. Við erum með margs konar mismunandi fyllingar og skreytingar á bollunum og ef bollurnar eru litlar er hægt að láta eftir sér að smakka fleiri. Ég vildi eiginlega að bakaríin gerðu þetta líka; hér hjá Fróða var keypt mikið af bollum með morgunkaffinu, einar 6-7 mismunandi tegundir, og ég fékk mér eina svona í tilefni dagsins en átti í vanda með að velja, það voru þrjár sem mig langaði að smakka ... Auðvitað er hægt að skera þær í minni bita og skipta þeim með sér en það yrði áreiðanlega vel þegið hjá mörgum ef hægt væri að kaupa minni bollur og smakka þá fleiri sortir.
Svo er spurning hvort á að hafa bollur í kvöldmatinn líka. Hér á vefnum er hægt að finna fullt af kjöt- og fiskbolluuppskriftum, jafnvel grænmetisbollur og buff líka. Hvernig væri nú að hafa grænmetisbuff, svona af því að á morgun er sprengidagurinn með tilheyrandi kjötáti?
Nanna
La Dolce Vita
Ef þið verðið á ferðinni í London um miðjan mars og hafið áhuga á ítölskum mat, þá er hægt að gera margt vitlausara en að líta inn á sýninguna La Dolce Vita í Olympia, 16.-19. mars næstkomandi. Þetta er ítölsk matar- og vínsýning þar sem m.a. er hægt að smakka á sýnishornum af ýmsu því besta sem ítölsk matargerð hefur upp á að bjóða, bragða á ítölskum vínum, fylgjast með ítölskum meistarakokkum eins og Aldo Zilli og Giorgio Locatelli leika listir sínar, skoða ítalska hönnun og margt fleira.
Hægt er að lesa meira um sýninguna á heimasíðunni.
Nanna
Frá Miðjarðarhafinu í öðruvísi veislu
Nýr Gestgjafi var að fara í prentun í gærkvöldi og á að koma út eftir helgi. Þemað í blaðinu að þessu sinni er Miðjarðarhafið, sú mikla matarkista. Þar er sannarlega af nógu að taka og eiginlega var helsti vandinn fyrir okkur að velja. Við kusum samt að leggja áherslu á grænmeti og fisk, einfaldleika og hollustu (sem er vissulega eitt af því sem einkennir Miðjarðarhafsmatargerðina) - en svo laumum við auðvitað með sætmeti og syndum í bland ...
Eftir alla Miðjarðarhafsmatseldina á síðustu vikum er gott að skipta aðeins um gír og raða í sig veisluföngum á Food & Fun eins og við á Gestgjafanum ætlum að gera á næstu dögum. Auðvitað er þar ýmislegt að finna úr Miðjarðarhafseldhúsinu, annaðhvort væri nú, en áhrifin koma úr mun fleiri áttum og margt spennandi að sjá á matseðlunum.
Í kvöld ætlum við Gestgjafakonur að líta við á Vox, Holtinu og hjá Sigga Hall, slaka á eftir vinnutörn síðustu daga og fá að smakka á góðgæti og spjalla við kokka. Við hlökkum til ...
Nanna
Það besta við lífið
„Eitt af því besta við lífið er að við þurfum reglulega að gera hlé á hverju því sem við erum annars að fást við og snúa okkur að því að borða.“
Þetta er haft eftir engum öðrum en Luciano Pavarotti. Kannski hann hafi samt gert of mörg hlé ... eða haft þau of löng. Allavega man ég að mér fannst ofboðslega fyndið þegar ég sá einu sinni part af óperu í sjónvarpinu þar sem Pavarotti stóð og söng: „Ég er að deyja úr hu-uu-uungri“ (eða eitthvað í þá áttina. Hann leit einmitt ekki út eins og maður sem átti á hættu að deyja úr hungri.
Hann hefur samt alveg rétt fyrir sér. Mér finnst afskaplega ánægjulegt að borða (ókei, það sést víst á mér ekki síður en Pavarotti) en mér finnst eiginlega ennþá meira gaman að elda. Og mér finnst líka gaman að kaupa í matinn og ákveða hvað ég ætla að hafa. Þveröfugt við flesta aðra, held ég. Að minnsta kosti heyri ég fólk oft segja „jú, mér finnst gaman að elda en ég vildi að ég þyrfti aldrei að fara í búð eða velta því fyrir mér hvað ég ætla að elda ...“
Fyrir mér er hálf ánægjan einmitt fólgin í því að velta því fyrir mér hvað ég ætla að elda, fletta blöðum og bókum og leita að hugmyndum, fara í búðir og skoða hráefni.
En ég er nú líka svolítið öðruvísi en aðrir.
Nanna
Íslensk matarhefð
Við Guðrún Hrund, ritstjórnarfulltrúi Gestgjafans, vorum á stofnfundi félagsins Matur-saga-menning í Sjóminjasafninu í Reykjavík í gær. Fjölmenni var á fundinum og greinilegt að mikill áhugi er á að efla þekkingu á íslenskum mat, þjóðlegum matarhefðum og menningararfi tengdum mat. Á meðal yfirlýstra markmiða félagsins er að kynna íslenskt hráefni, gildi þess og geymsluaðferðir, kynna framleiðslu á matvælum og þjóðlegum réttum frá mismunandi tímum, efna til sýninga, kynninga og fræðslufunda um íslenskan mat, reka matarsetur og vera vettvangur þar sem hægt er að kynna matvöru úr íslensku hráefni.
Vonandi fer félagið vel af stað og nær að safna undir einn hatt öllum sem áhuga hafa á þessum efnum, því að víst er að hann er mikill. Stjórn Klúbbs matreiðslumeistara hefur unnið að svipuðu verkefni um hríð (sjá Íslenskt eldhús á heimasíðu klúbbsins), í Hólaskóla er verið að vinna merkt brautryðjendastarf í matartengdri ferðaþjónustu og marga fleiri mætti tína til. Víst er að áhuginn er til staðar, nú er bara að samræma kraftana og beina öllu í réttan farveg!
Nanna
Súpa og hreint hjarta
„Aðeins hinir hjartahreinu geta búið til góða súpu“, er haft eftir tónskáldinu Beethoven. Ég skal ekki segja um það en hitt er víst að það að búa til góða súpu er afar nytsamur hæfileiki og getur aflað þeim sem yfir honum búa mikilla vinsælda.
Núna er einmitt súpuveður úti. Ég er að hugsa um að elda góða súpu handa fjölskyldunni í kvöldmatinn, sennilega almennilega ungverska gúllassúpu, gerða eftir uppskrift frá sjálfum Karoly Gundel, sem hið fræga veitingahús Gundels í Búdapest er kennt við. Ég hef tvisvar borðað á Gundels, fékk reyndar í hvorugt skiptið gúllassúpu og Gundel sjálfur er auðvitað löngu horfinn af sjónarsviðinu, en maturinn var góður engu að síður.
Svona súpa hitar sannarlega vel á köldum degi.
Nanna
Fuglaflensa með farfuglum
Ótti við fuglaflensu er þegar farinn að hafa mjög mikil áhrif á alifuglarækt sumstaðar í Evrópu. Í síðustu viku var greint frá því á Ítalíu að þar hefði samdráttur í sölu á fuglakjöti þegar kostað framleiðendur 550 milljónir evra og útlit væri fyrir að 30.000 manns misstu vinnuna. Í Frakklandi, þar sem farið hefur í vöxt á síðustu árum að alifuglar væru látnir ganga lausir utanhúss, fer nú nánast öll alifuglarækt fram inni í húsum en lausagöngufuglunum hefur verið slátrað. Sala á fuglakjöti hefur dregist mikið saman víða og hið sama má segja um sölu á gæsalifur og öðrum afurðum.
Og nú fara farfuglarnir að koma sunnan frá Afríku og frá Miðausturlöndum, en þar hefur fuglaflensu mikið orðið vart að undanförnu. Um helgina var staðfest að svanir hefðu drepist á Suður-Ítalíu og Sikiley úr fuglaflensu.
Engin dæmi eru þó enn um að fuglaflensan hafi borist á milli manna. Allir þeir sem hafa veikst hafa meðhöndlað dauða fugla og það er ekki talin nein hætta í því fólgin að borða fuglakjöt, sé það fulleldað og fyllsta hreinlætis og öryggis gætt við matseldina.
Sjálfsagt er bara tímaspursmál hvenær flensan berst hingað. Farfuglar koma hingað frá Afríku í stórum hópum þegar fer að vora og líklegt er að einhverjir þeirra beri veikina með sér. Enn sem komið er ætti þó ekki að vera nein ástæða til að óttast hana.
Nanna
Fæða og fjör
Nú fer að líða að Food & Fun-hátíðinni, sem haldin verður 22.-25. febrúar á tólf veitingastöðum í Reykjavík - og svo er auðvitað kokkakeppnin í Listasafninu á laugardaginn. Sjálfsagt er löngu allt upppantað á sumum veitingahúsanna en ef ykkur langar til að fara út að borða þessa daga ættuð þið endilega að athuga hvort ekki er einhvers staðar hægt að koma sér inn - það eru ekki endilega frægustu kokkarnir sem bjóða upp á besta matinn þessa daga, því höfum við á Gestgjafanum fengið að kynnast á síðustu árum.
Það er gaman að sjá tvær konur í kokkahópnum, Floru Mikula, sem verður á Listasafninu á Hótel Holti og er vel þekkt í Frakklandi og víðar, og Ris Lacoste frá Washington, sem verður á Einari Ben.
Ég borðaði í fyrra á Vox hjá Dananum René Redzepi, sem vann svo kokkakeppnina og er einn af dómurunum núna. Það var gott en samt ekki eins gott og það sem sigurvegarinn 2003, Volker Drkosch (nei, ég veit ekki hvernig á að bera það fram) bauð upp á, en hann kokkaði á Argentínu. Það var eftirminnilegt.
Nanna
Rúsínukökur og epli
Svo er náttúrlega hægt að vitna í Biblíuna, nánar til tekið Ljóðaljóðin:
Endurnærið mig með rúsínukökum, hressið mig á eplum, því að ég er sjúk af ást.
Rúsínukökur og epli - það hljómar ekki illa. Svona ef mann langar ekkert sérstaklega í súkkulaði.
Nanna
Súkkulaðimúffur fyrir elskendur
Það er víst Valentínusardagurinn í dag. Ég er ekkert fyrir svoleiðis tilstand og sé enga sérstaka þörf fyrir að innleiða þennan tyllidag hér - en hins vegar er engin ástæða til annars en að nota sérhvert tækifæri til að gæða sér á einhverju góðgæti og þá er ekkert verra að það sé pínulítið rómantískt. Og súkkulaði er nú alltaf bærilega rómantískt, er það ekki?
Súkkulaðimúffur fyrir súkkulaðielskendur
400 g suðusúkkulaði
200 g smjör
225 g hveiti
2 ½ tsk lyftiduft
150 g ljós hrásykur (eða hvítur sykur)
125 ml mjólk
3 egg
1 stk. Mars eða Snickers
Ofninn hitaður í 180°C og múffuform (fyrir 12 múffur) smurt eða klætt innan með pappírsformum. Helmingurinn af súkkulaðinu og smjörið brætt við hægan hita og hrært öðru hverju þar til það er bráðið. Látið kólna ögn. Hveiti og lyftiduft sigtað saman í skál og sykri blandað saman við. Eggin þeytt í annarri skál og mjólkinni þeytt saman við. Hveitiblöndunni og súkkulaðiblöndunni hrært saman við. Mars- eða Snickers-stykkið skorið í 12 sneiðar. 1 msk af deigi sett í hvert múffuform, sneið af Mars eða Snickers þar ofan á og svo er afganginum af deiginu skipt jafnt á forminn. Bakað í 18-20 mínútur, eða þar til múffurnar hafa lyft sér vel og eru svampkenndar. Látnar kólna á grind. Afgangurinn af súkkulaðinu bræddur í vatnsbaði og hellt yfir þær.
Nanna
Aldrað súkkulaði
Ég var að lesa áðan frétt um konu í Bretlandi sem á 104 ára gamalt súkkulaðistykki. Þetta stykki var framleitt af Cadbury's árið 1902 í tilefni af krýningu Játvarðar 7. Englandskonungs. Afi konunnar keypti súkkulaðið við það tækifæri og gaf henni það mörgum árum seinna.
Það sem mér finnst merkilegt við þetta er að konan segist hafa smakkað á súkkulaðinu fyrir 53 árum. Hún man ekkert hvernig það var á bragðið. En það getur varla hafa verið mjög gott. Að minnsta kosti tækist mér aldrei að eiga súkkulaðistykki sem byrjað væri að borða af í meira en hálfa öld. Ekki nema það væri verulega vont á bragðið.
Nanna
Gæsalifur í stað saltfisks
Ég var í gær í boði þar sem kynnt var nýtt nafn og vörumerki fyrirtækisins sem áður hét SÍF en heitir nú Alfesca. Það kom á óvart að sjá hve stórt þetta fyrirtæki er orðið á ákveðnum sviðum matvælageirans í Evrópu, t.d. hvað varðar gæsalifur og reyktan lax í Frakklandi, rækju í Englandi og fleira. Lífið er víst ekki bara saltfiskur ...
Og svo var náttúrlega boðið upp á alls kyns kræsingar, þar á meðal ómælt magn af gæsalifur.
Nanna
Matur - saga - menning
Nú stendur til að stofna félag áhugafólks um íslenska matarhefð og forna matargerð. Hér fer á eftir kynningarbréf frá undirbúningshópnum:
Miðstöð íslenskra matarhefða og fornrar matargerðar
? Starfsemi félagsins um mat, sögu og menningu mun felast í því að kynna framleiðslu á matvælum og þjóðlegum íslenskum réttum frá ólíkum tímum. Gestir fá tækifæri til að smakka á matnum, sjá handbragð, áhöld og matvæli.
? Sýnt verður hvernig forfeður okkar notuðu það sem til var í náttúrunni bæði til matar og lækninga.
? Á ákveðnum dögum verður hægt að bjóða upp á skemmtiatriði frá sama tíma og maturinn sem í boði er. Þá gæti starfsfólk klæðst fatnaði frá sama tíma og maturinn.
? Frá upphafi Íslandsbyggðar hafa íslenskar konur að mestu eða öllu leyti staðið fyrir allri matarvinnslu og matargerð á heimilum landsins. Það er því vel við hæfi að félag um stofnun „matarseturs“ verði stofnað af konum.
? Í byrjun 20. aldar tóku konur sig saman og stofnuðu Heimilisiðnaðarfélag Íslands. Tilgangur félagsins var, og er, að auka og efla íslenskt handverk sem á rætur í þjóðlegum menningararfi. Nú, tæpum hundrað árum síðar, hafa nokkrar konur ákveðið að fara sömu leið og stofna félag til að endurvekja, vernda og kynna íslenska matarhefð.
Matur er mannsins megin
? Matur og matargerð er veigamikill þáttur í sögu hverrar þjóðar. Íslensk matarhefð er að mörgu leyti einstök, bæði hvað varðar hráefni, vinnslu og geymslu.
? Um þessar mundir ríkir mikill og almennur áhugi á alþjóðlegri matargerð, jafnt innanlands sem utan.
? Ferðamenn leita gjarnan uppi þjóðlega rétti til að kynnast betur landi og þjóð.
? Enn sem komið er hefur íslenskri matarmenningu ekki verið sýndur sá sómi sem henni ber og ungt fólk á Íslandi kann jafnvel betri skil á erlendum skyndibitamat en þjóðlegum eða hefðbundnum íslenskum mat.
? Nú þegar hefur undirbúningshópur lagt drög að því að fá leigt húsnæði að Grandagarði 8, til kynningar á þjóðlegum réttum.
? Væntanlegum stofnfélögum er boðið til fundar fimmtudaginn 16. feb. kl. 17:15 að Grandagarði 8, 2. hæð.
Undirbúningshópur:
Birna Kristín Lárusdóttir, Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigrún Magnúsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, allar þjóðfræðingar, og Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur.
Að nýta brauðafganga
Ekki henda endum og afgöngum af brauði. Settu það í matvinnsluvélina og láttu hana ganga þar til brauðið er orðið að mylsnu. Settu það svo í poka eða box og geymdu í frysti, þá áttu alltaf ferska brauðmylsnu, t.d. til að velta kjöti eða fiski upp úr, til að blanda saman við kjöt- eða fiskhakk þegar búa á til bollur eða buff, til að nota í fyllingar og margt fleira. Þú getur líka búið til bragðbætt rasp, t.d. með því að setja hvítlauk, vorlauk, sítrónubörk, kryddjurtir og fleira saman við - mundu bara að merkja umbúðirnar svo að þú vitir hvernig hver skammtur er bragðbættur.
Nanna
Er fita hættulaus?
Merkileg þessi nýja rannsókn sem sýnir að fita í mat er kannski ekki eins hættuleg og manni hefur lengi verið sagt. Í þessari rannsókn tóku þátt nærri 50.000 konur á miðjum aldri og eldri, flestar of þungar; af þeim gerðu um 20.000 róttækar breytingar á mataræði sínu og drógu verulega úr fituneyslu. En eftir átta ár kom í ljós að þetta virtist lítil áhrif hafa haft á tíðni hjartasjúkdóma, brjóstakrabba og fleiri kvilla.
En auðvitað þýðir þetta ekki að nú sé allt í lagi að háma í síg fitu af öllu tagi. Kannski hefði niðurstaðan orðið önnur ef rannsóknin hefði verið hafin þegar konurnar voru ungar og þeim fylgt eftir jafnvel í áratugi. Það er vel hugsanlegt að það sé fitan sem við neytum þegar við erum börn og unglingar sem skiptir mestu hvað varðar heilsufar í framtíðinni og þess vegna er það verulegt áhyggjuefni að fylgjast með holdafari barna og ungmenna og ástæða til að grípa til ráðstafana.
Við þessar miðaldra getum aftur á móti haldið áfram að háma í okkur fitu ... eða hvað?
Nanna
Óvenjulegt snakk úr sjónum
Ég fékk að smakka nýtt og óvenjulegt snakk í gær og er reyndar með það hjá mér í skál hér á skrifborðinu. Þetta er þurrkaður beltisþari sem fyrirtækið Hollusta úr hafinu er að gera tilraunir með og hyggst setja á markað innan tíðar. Við kynntum nokkrar vörutegundir frá fyrirtækinu í nýja Gestgjafanum, hollustukrydd úr sjávargróðri og sósur (sölva- og þarasósu, auk fjallagrasasósu) og það er mikil tilraunastarfsemi í gangi þarna og verið að þróa ýmiss konar spennandi vörur.
Beltisþarinn er eingöngu ristaður í ofni og er því algjörlega laus við öll aukaefni en hefur einkar skemmtilegt reykbragð, eilítið sætt, og ég sé fyrir mér að þetta geti orðið vinsælt hollustusnakk.
Nanna
Bilun
Vegna einhverrar bilunar í kerfinu hef ég ekki getað svarað fyrirspurnum sem hafa borist inn í Spurt og svarað um tíma. Vona að þessu verði kippt í lag mjög fljótlega og biðst innilega afsökunar á töfinni.
Nanna


