Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

30 jan. 2006 : Fimmtíu bollar á dag

Ég er að lesa í bók sem heitir A History of the World in Six Glasses, þar sem höfundurinn rekur mannkynssöguna í drykkjum, ef svo má segja - byrjar á bjórbruggun á steinöld og endar á kókakóla. Drykkirnir sex (eða drykkjarflokkarnir) sem hann notar til að rekja söguna eru, fyrir utan bjórinn og kókið, léttvín, brennd vín, kaffi og te.

Það eru margar athyglisverðar frásagnir í þessari bók og þar á meðal var ég að lesa í tekaflanum um hollenska læknirinn Cornelius Bontekoe, sem uppi var um miðja 17. öld. Hann hvatti mjög ákaft til tedrykkju; sagði að fólk ætti helst að drekka tebolla á klukkutíma fresti, byrja kannski á tíu tebollum á dag og auka svo neysluna. Sjúklingum ráðlagði hann að drekka minnst fimmtíu tebolla á dag en sagði þó að tvö hundruð bollar á dag væru líklega hámarkið.

Reyndar voru tebollar á þessum tíma líklega mjög litlir, kannski ekki mikið stærri en fingurbjargir. En það kemur varla á óvart að Hollenska Austur-Indíafélagið, sem hafði einkaleyfi á teinnflutningi til Hollands, verðlaunaði Bontekoe fyrir skrifin - eða pantaði þau hjá honum.

Te er ágætt. En fimmtíu bollar á dag ...

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (158)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði