Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Ó Sushi!
Við Gestgjafakonur vorum í dag í opnunarteiti hjá nýjum sushi-stað, Ó Sushi, í Iðuhúsinu í Lækjargötu (uppi á annarri hæð, þar sem Sowieso var áður. Þetta er alvörusushi-staður með færibandi og tilheyrandi. Ef þið kannist ekki við svona staði, þá sitja allir við eitt langt og mikið borð (L-laga í þessu tilviki) og á miðju borðinu er færiband sem gengur í hring. Á bandinu eru litlir diskar með mismunandi sushi-réttum og svo situr fólk við borðið og velur sér diska af bandinu. Diskarnir eru mismunandi litir eftir því hvað bitarnir kosta og svo þegar maður er búinn er einfaldlega litið á tómu diskana til að finna út hvað reikningurinn á að vera hár. Mér sýndist verðinu vera stillt í hóf á Ó Sushi og allt sem ég smakkaði var ljómandi gott.
Þetta er skemmtileg viðbót í veitingahúsaflóruna og ég vildi eiginlega óska þess að ég væri enn að vinna nálægt miðbænum, það væri tilvalið að skjótast í hádeginu og fá sér svolítið sushi af og til. En staðurinn er reyndar opinn á kvöldin líka.
Nanna

