Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

20 des. 2005 : Kryddi núið inn í kjöt

Ef þið eruð með uppskrift að einhvers konar steik þar sem talað er um að það eigi að þrýsta eða nudda kryddi inn í kjötið, þá getur verið gott að gera það svona: Breiðið plastfilmu á borðið, leggið kjötstykkið á það, penslið það eða smyrjið með olíu og stráið kryddinu yfir. Breiðið svo plastfilmuna yfir og þrýstið henni þétt að kjötinu alls staðar.

Þetta er sérlega gagnlegt þegar maður er með t.d. nautasteik eða annað kjöt sem á að krydda með grófmöluðum pipar eða öðru kryddi sem á að þrýsta inn í kjötið svo að það myndi eins konar skorpu.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

19 des. 2005 : Fyrir alvöru lúxusdýr

Ég minntist hér um daginn á súkkulaðibúðing sem ég skreytti með gullflögum. Gull er viðurkennt aukaefni í mat og er meira að segja með E-númer. En maður er ekki að nota mikið af því, ég var með lítið umslag sem líklega geymdi brot úr grammi eða svo og kostaði mig 20 danskar krónur (en ég er búin að nota það þónokkrum sinnum til skreytinga og það er eitthvað eftir enn). En ef einhver gæfi mér gullhúðað súkkulaði í jólagjöf er ég ekki alveg viss um að ég mundi borða það.

Það þyrfti allavega að vera eitthvert mjög sérstakt tilefni.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

19 des. 2005 : Aftur í jólaskap

Það styttist óðum til jóla og ég er óðum að komast aftur í jólaskap - aftur, segi ég, af því að við á Gestgjafanum erum í hálfgerðu jólaskapi frá því að við byrjum að vinna í kökublaðinu snemma hausts og þar til jólablaðið fer í prentun um miðjan nóvember. Undanfarinn mánuð höfum við aftur á móti verið að vinna að janúarblaðinu og fylgiblaði þess, Bestu uppskriftunum 2005. Nú eru þau bæði komin í prentsmiðju og við höfum smáhlé áður en vinna við febrúarblaðið hefst, þannig að nú hefst okkar jólaundirbúningur.

Ef við hefðum þetta eins og á flestum bresku matarblöðunum værum við í rauninni með tvö jólablöð; aðalblaðið, desemberblaðið, kæmi þá út snemma í nóvember en snemma í desember kæmi svo janúarblaðið og innihéldi bæði aðhalds- og sparnaðarrétti til að vera með eftir jólin og líka ýmsa jólarétti undir heitinu ,,Last minute Christmas" eða eitthvað ámóta. Ég held reyndar að okkar kerfi sé betra ...

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

17 des. 2005 : Hvað er með mestum afslætti?

Ég var í einni Bónusbúðinni í gær og í kæliklefanum var gömul kona sem leitaði aðstoðar bæði starfsmanna og annarra viðskiptavina og talaði hátt. Hún var að leita sér að kjöti, sennilega í jólamatinn. Ég bauðst til að aðstoða hana en varð dálítið undrandi þegar ég komst að því að það eina sem skipti hana máli var að afslátturinn væri sem mestur. Það virtist ekki neitt atriði um hvaða kjöt var að ræða eða hvað það kostaði, með eða án afsláttar - það var afsláttarprósentan sem réði. Hún gafst loksins upp á hjálp minni þegar ég gat ekki fundið fyrir hana neitt sem var með meira en 30% afslætti. Alveg sama þótt ég reyndi að benda henni á kjöt sem var ódýrara en þetta með 30% afslættinum og að mínu mati síst verra.

Ég fór svo að velta því fyrir mér hvort það væru ekki margir sem létu stjórnast af afslættinum umfram annað. Og skyldi það ekki vera svo að einhverjir seljendur notfærðu sér þetta á einhvern hátt?

Ég man að fyrir nokkrum árum kom á markað ný tegund af kjötáleggi frá ákveðnum framleiðanda. Ég prófaði hana strax og líkaði ágætlega, þannig að ég keypti þetta álegg öðru hverju næsta árið eða svo. Ég vissi því vel hvað kílóverðið var. En einn daginn þegar ég kom í búð og ætlaði að kaupa þetta sá ég að á áleggsbréfinu var stór og áberandi miði með textanum Sértilboð! eða eitthvað ámóta. Þetta leist mér vel á og ætlaði að kaupa að minnsta kosti tvö bréf fyrst áleggið var á tilboði. En þegar ég leit betur á miðann var kílóverðið nákvæmlega það sama og áður. Hvert var þá sértilboðið?

Ég hringdi í Neytendasamtökin út af þessu og fékk ef ég man rétt það svar að þetta væri ,,löglegt en siðlaust". Ekki veit ég hvort lögin hafa breyst, kannski er þetta enn fullkomlega löglegt. En allavega er vissara að gá að sér þegar vara er merkt sem eitthvert kostaboð - það er ekkert víst að hún sé ódýrari en önnur sambærileg vara þegar vel er að gáð.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (1)

14 des. 2005 : Nautakjötshallæri

GE-0506-61-04_3Athyglisverð frétt á forsíðu Fréttablaðsins í morgun, um nautakjötsskort (sem maður hefur vissulega orðið var við) og orsakir hans. Það er auðvitað gleðiefni að skyrneysla skuli hafa aukist svona mikið en maður vill nú eiga þess kost að geta keypt nautakjöt eftir sem áður.

Þarna er sagt frá því að búið sé að heimila innflutning á nokkru magni af nautahakki. Innflutningur getur vissulega bjargað málunum að einhverju leyti og ég á reyndar tvær eða þrjár nýsjálenskar nautalundir í frysti (þær eru ljómandi góðar) en ég vildi gjarna sjá meira af kjöti sem er þarna einhvers staðar á milli nautalundanna, dýrasta bitans af skepnunni, og hakksins, sem er náttúrlega úr ódýrustu bitunum.

Ég sé þegar ég fletti eldri blöðum að við höfum ekki verið með mikið af nautakjötsuppskriftum í Gestgjafanum þetta árið; nóg um lamb, svín og kjúkling og heldur meira af fiskuppskriftum en oft áður, en nautið hefur lítið komið við sögu. Þetta er að nokkru leyti meðvitað, þar sem við höfðum orðið vör við kjötskortinn og vissum að hann ætti eftir að aukast - sveiflur í nautakjötsframleiðslu eiga sér auðvitað langan aðdraganda þar sem eldistími gripanna er svo langur - en að hluta er þetta tilviljun. Kannski við bætum úr þessu á komandi ári. Og reyndar á ég einmitt von á afskaplega gómsætu osso buco í hádeginu.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

13 des. 2005 : Fat fyrir jólasteikina

Ég skrapp yfir í Húsgagnahöllina í hádeginu til að ná mér í eitthvað að borða (það fæst alltsvo fleira en húsgögn þar ef þið vissuð það ekki) og skoðaði í leiðinni smávöru- og gjafavörudeildina á jarðhæðinni. Þar var allt fullt af nýjum vörum og svo er jólatilboð í gangi, veruleg verðlækkun á ýmsum vörum, og ég féll náttúrlega fyrir nokkrum hlutum, bæði fyrir sjálfa mig og í jólapakka.

Ég sá hins vegar ekki stóru steikarfötin sem hafa verið til þar að undanförnu og ég hafði einmitt hugsað mér að benda á, t.d. ef fólk vantaði fat fyrir stóran kalkúna eða svínslæri. Það stærsta má t.d. sjá bæði undir kalkúnanum og lambahryggnum í jólablaði Gestgjafans. Maður notar kannski ekki svona fat oft en tvisvar til þrisvar á ári getur það komið sér mjög vel og þessi voru einmitt á mjög góðu verði - tæpar 3000 krónur fyrir þau stærstu. Vonandi koma þau aftur. Og svo er hægt að fá stór steikarföt víðar en þau eru þó ekki mjög algeng.

Ég á sjálf mjög stórt fat sem ég keypti fyrir mörgum árum í Ostabúðinni á Skólavörðustíg (á meðan Osta- og Smjörsalan var með búðina). Það var reyndar töluvert dýrara og var þó á útsölu. En ég hef aldrei séð eftir þeim kaupum.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

12 des. 2005 : Að skera mozzarella

Ef þið notið stundum ferskan mozzarellaost (kúlur) og eruð í vandræðum með að skera hann í jafnar sneiðar - hjá mér verða fyrstu sneiðarnar fínar en þær sem á eftir koma allar skakkar og teygðar - þá mætti reyna að setja ostinn í eggjaskerann, þá ættu að fást fínar og jafnar sneiðar.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (1)

12 des. 2005 : Rósettubakkelsi

Ég var að velta því fyrir mér - reyndar út af fyrirspurn sem við fengum um daginn og allir hér komu af fjöllum nema ég - ætli rósettur séu alveg gleymdar? Ég man að þegar ég var unglingur fékk maður þær stundum á kökuhlaðborðum og víðar en þær voru reyndar aldrei algengar hér á landi. Rósettujárn fengust samt og ég á einmitt eitt sem ég keypti í Hagkaupum í Skeifunni fyrir mörgum árum (reyndar á útsölu, sennilega af því að enginn vissi hvaða fyrirbæri þetta var).

Rósettur (rosettbakkels) er líklega algengast í Noregi og þá helst sem jólabakkelsi, annaðhvort stráðar flórsykri eða bornar fram með þeyttum rjóma og sultu. Hérlendis var aftur á móti eitthvað um að þær væru bornar fram með majónessalötum - eða það hef ég heyrt, sjálf komst ég aldrei í kynni við slíkt.

Ef þið viljið prófa, þá fengust rósettujárn hjá Þorsteini Bergmann síðast þegar ég kom þar inn. Ég á reyndar einhvers staðar heila matreiðslubók sem er bara með rósettuuppskriftum, kannski ég finni hana og dragi fram gamla rósettujárnið mitt.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (1)

10 des. 2005 : Matreiðslubókauppskeran

Það er ekkert sérlega mikið úrval af nýjum íslenskum matreiðslubókum þetta árið og nokkrar bækur sem ég veit að eru í undirbúningi og til stóð að kæmu út núna hafa ekki látið á sér kræla - kannski þýðir það að næsta ár verði gott matreiðslubókaaár. Við á Gestgjafanum höfum nú komið að nokkrum þeirra bóka sem út komu; Marentza Poulsen, sem hefur skrifað mikið fyrir blaðið, tók saman bókina Súkkulaði fyrir Nóa-Síríus, Friðrika Hjördís Geirsdóttir skrifaði Lostæti á lægra verði fyrir Bónus og sjálf gerði ég Jólahefðir fyrir Nóatún, auk þess sem Gestgjafinn gaf út bókina Lambakjöt með uppskriftum mínum (og fleiri slíkar eru í undirbúningi). Gísli Egill Hrafnsson, ljósmyndari Gestgjafans, tók myndirnar í allar þessar bækur.

En svo má ekki gleyma að minnast á nýju Hagkaupsbókina, sem kokkalandsliðið á heiðurinn af. Snæfríður Ingadóttir skrifaði bókina Opið hús. Menning og matur á Íslandi nútímans. Og fyrr á árinu kom út bókin Gott af grillinu eftir Margréti Þóru Þorláksdóttur. Þar með held ég að það sé upptalið, að undanskildum nokkrum þýddum kverum.

Annars má ekki gleyma því að Gestgjafinn er á við nokkrar matreiðslubækur á ári ...

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

10 des. 2005 : Óhefðbundnar jólakrásir

Það gefst sannarlega kostur á að bjóða upp á eitthvað annað en rjúpur, hamborgarhrygg, pörusteik, lambalæri eða annan hefðbundinn jólamat þessi jólin ef fólk langar að breyta til. Margs konar villibráð og annað kjöt er nú í boði í stórmörkuðum og sumt af því mjög langt að komið. Ég veit reyndar ekki hve margir vilja hætta á að bera fram kengúrusteik á aðfangadagskvöld en það eru nú fleiri tilefni um hátíðarnar þar sem gaman væri að prófa eitthvað alveg nýtt. Ég á til dæmis kengúrusteik í frysti og ætla að bjóða fjölskyldunni upp á hana einhvern tíma á næstunni.

Og svo er boðið upp á dádýr, krónhjört, héra, lynghænur og fjölmargt annað. Namminamm. Ég er sjálf búin að kaupa krónhjartarfillet og reikna með að bera það fram á aðfangadagskvöld ásamt reyndar andabringum. En svo getur verið að ég skipti um skoðun, láti andabringurnar duga og geymi krónhjörtinn fram til áramóta.

Í kvöld ætla ég aftur á móti að aðstoða dótturson minn og upprennandi meistarakokk við að elda kjúkling. Ég reikna með að við gerum eitthvað einfalt, troðum hann kannski fullan af sítrónum og rósmaríni, kryddum með pipar og salti og steikjum í ofni.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

8 des. 2005 : Ó Sushi!

Við Gestgjafakonur vorum í dag í opnunarteiti hjá nýjum sushi-stað, Ó Sushi, í Iðuhúsinu í Lækjargötu (uppi á annarri hæð, þar sem Sowieso var áður. Þetta er alvörusushi-staður með færibandi og tilheyrandi. Ef þið kannist ekki við svona staði, þá sitja allir við eitt langt og mikið borð (L-laga í þessu tilviki) og á miðju borðinu er færiband sem gengur í hring. Á bandinu eru litlir diskar með mismunandi sushi-réttum og svo situr fólk við borðið og velur sér diska af bandinu. Diskarnir eru mismunandi litir eftir því hvað bitarnir kosta og svo þegar maður er búinn er einfaldlega litið á tómu diskana til að finna út hvað reikningurinn á að vera hár. Mér sýndist verðinu vera stillt í hóf á Ó Sushi og allt sem ég smakkaði var ljómandi gott.

Þetta er skemmtileg viðbót í veitingahúsaflóruna og ég vildi eiginlega óska þess að ég væri enn að vinna nálægt miðbænum, það væri tilvalið að skjótast í hádeginu og fá sér svolítið sushi af og til. En staðurinn er reyndar opinn á kvöldin líka.

Nanna

 

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

7 des. 2005 : Góðgæti í London

 

Ég var að koma frá London, þar sem ég var í nokkurra daga afslöppunarferð með dóttur minni. Auðvitað lék maturinn stórt hlutverk ?

Við fórum með síðdegisvél á föstudaginn og vorum ekki komnar á hótelið fyrr en upp úr níu svo að við ákváðum að borða á veitingastaðnum á hótelinu, Rhodes W1 (nýjasti staður Gary Rhodes). Ágætis matur en allt of hávær músik, meira eins og skemmtistaður. Ég fékk mér ýsu með rósmarínrjóma (vel elduð en ekkert voðalega spennandi réttur, hefði viljað hafa meira af rósmarínrjómanum) og sticky toffee pudding með karamellusósu; dóttir mín pantaði ljómandi góðan grillaðan túnfisk og rabarbarabúðing með rommköku á eftir.

Á laugardaginn byrjuðum við á hamborgara á Boroughs-markaðnum (kannski ekki dæmigerður morgunmatur en ég fæ mér ævinlega hamborgara í básnum hjá Northfield Farm þegar ég kem á Boroughs; það eru alvöruborgarar og ég mæli sérstaklega með lambakjötsborgurunum þeirra) og síðan var stefnan tekin á Portobello Road. Það ferðalag endaði auðvitað í matreiðslubókabúðinni Books for Cooks, þar sem við fengum okkur ansi góða chorizo- og baunasúpu með nýbökuðu focacciabrauði.  Síðdegiste með skonsum og clotted cream í Fortnum & Mason og dagurinn endaði svo á Vasco & Pieros Pavillion í Soho, þar sem ég fékk mér agnolotti með salvíusmjöri og grillaða kálfalifur (mmmm!) og dóttir mín úmbríska skinku með parmesan og sverðfisk. Við fengum okkur eftirrétti líka en það er alveg stolið úr mér hvað það var ?

Við eyddum sunnudagsmorgninum í mestu rólegheitum á Paul’s-bakaríinu við Marylebone High Street, yfir kaffi og fullri körfu af nýbökuðu bakkelsi. Alveg ljómandi gott brauð en þjónustan hefði mátt vera betri ? Þetta dugði okkur fram eftir degi en við borðuðum svo líbanskan kvöldverð á Maroush við Edgware Road (rétt við hótelið); fjöldi mezze-rétta (hummus, eggaldinídýfa, tabbouleh, grillað grænmeti, grillaðir kjúklingavængir, grillaðar líbanskar pylsur, nýbakað pítubrauð, eitthvað fleira). Þetta hefði alveg dugað okkur en svo kom aðalrétturinn – grillað kjöt af ýmsu tagi – og síðan eftirrétturinn, sem var baklava og ferskir ávextir. Þetta kostaði 40 pund fyrir tvo en hefði dugað fyrir þrjá að minnsta kosti.

Á mánudaginn fengum við okkur heitar samlokur á Richoux í Knightsbridge (á móti Harrods) en eftir búðarrölt síðdegis komumst við að þeirri niðurstöðu að við værum ekkert sérlega svangar og nenntum ekki að leita að veitingastað – og það er KFC-staður á neðstu hæð hótelsins ? Við tékkuðum okkur svo út á þriðjudagsmorgun, forum út í kuldann, komum aftur á hótelið um tvöleytið kaldar og svangar og ákváðum að fá okkur síðbúinn hádegisverð á Rhodes W1 – nú var enginn músik eða hávaði og andrúmsloftið allt annað. Við fengum okkur rjúkandi heita franska lauksúpu sem hlýjaði verulega og á eftir fékk ég mér uxahala með kartöflustöppu og dóttir mín fékk sér lax.

Þetta var góð ferð, bæði matarlega og að öðru leyti. Og ég birgði mig upp af ýmsum sælkeravörum, matreiðslubókum og fleiru.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (2)

2 des. 2005 : Gullskreyttur búðingur

Við vorum að kynna jólablað Gestgjafans í Ísland í bítið í morgun, ég og Úlfar Finnbjörnsson, sem starfssystur mínar þráast alltaf við að kalla „villta kokkinn okkar“ (hmm, hvað ætli þær viti um Úlla sem ég veit ekki?). Það á samt sennilega við það að hann er snillingur í villibráðareldamennsku og á t.d. nokkrar góðar uppskriftir í jólablaðinu. Þar er hann líka með sérstakan þátt um villibráðarsósur.

Þetta gekk ágætlega, held ég, en ég kunni nú betur við gamla stúdíóið. Súkkulaðibúðingnum sem ég mætti þarna með og var gerður eftir uppskrift frá Hönnu Ingibjörgu Arnarsdóttur, sem er með Gómsætt án sykurs í blaðinu og á eftirréttaþátt í jólablaðinu, var allavega sérlega vel tekið og Heimir hætti ekki fyrr en búðingsglasið var tæmt. Smekkmaður, Heimir.

Hanna skreytti búðinginn með rjóma og ristuðum möndlum, sem er mjög gott, en við vorum enn flottari á því og skreyttum hann með skíragulli - þ.e. flögum af blaðgulli, sem ég átti til. Gullið var reyndar keypt í Kaupmannahöfn (matardeildinni í Magasín eða Illum, man ekki á hvorum staðnum) en ég veit að GV heildverslun flytur þetta inn og það fæst kannski í smásölu einhvers staðar. Ef einhvern langar nú að vera grand á því um jólin. Annars var gullið ekki dýrt, ég borgaði innan við 20 danskar krónur fyrir lítinn poka sem dugir til að skreyta marga eftirrétti eða konfektmola.

Gull er viðurkennt aukaefni í matvæli, hvort sem þið trúið því eða ekki, og er meira að segja með E-númer.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði