Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Hættuleg blanda?
Ef þið skylduð eiga grænmetisblöndu með nafninu Hátíðarblanda í frystinum, þá ættuð þið að skila henni aftur í búðina þar sem hún var keypt.
Aðskotahlutur? Hljómar ekki vel.
Reyndar skilst mér að þetta hafi verið músarhaus.
Nanna
Meira um Kökustríðið
Það kom í ljós að ég hafði ekki alveg rétt fyrir mér um upphaf Kökustríðsins en þetta varð til þess að fróðleiksvinur einn tók sig til og gerði síðu á íslensku Wikipediuna (alfræðiorðabók á netinu).
Nanna
Svona vantar mig
Ég sé í nýjasta blaði Waitrose Food Illustrated að við meistarakokkurinn Marco Pierre White eigum allavega eitt sameiginlegt: Hvorugt okkar hefur nokkru sinni tekið bílpróf. Hann á að vísu konu sem situr við stýrið þegar þau fara til útlanda en í Bretlandi er það ,,Mr Ishii, my immaculate personal assistant" sem sér um aksturinn.
Mig vantar svoleiðis. Ekki konu, reyndar, heldur svona immaculate personal assistant. Sem gerir allt sem ég segi honum, ekur mér hvert sem ég þarf á að halda og sér um uppþvottinn og fráganginn í eldhúsinu (ég efast reyndar um að Mr. Ishii sjái um þá deild). Og gerir það þegjandi og hljóðalaust, því að eins og MPW segir í lok greinarinnar: „Ég borga Mr. Ishii ekki kaup fyrir að kvarta.“
Það væri nú munur.
Nanna


