Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

29 nóv. 2005 : Leyndardómar Bush-fjölskyldunnar

Hérna er hægt að lesa skemmtilegan ritdóm úr The Independent um matreiðslubók Bush-fjölskyldunnar. Gaman að sjá hvaða mat forseti Bandaríkjanna er alinn upp við - þar er sannarlega ekkert nýmóðins klettasalat eða balsamedik. Þar kemur aftur á móti fram að Barbara Bush ber gjarna fram búðing úr núðlum, eplum, kanel, eggjum, rjóma, rúsínum, kotasælu og kornflexi með nautalundinni og lambalærinu.

Jamm. Ég veit nú ekki alveg hvort mig langar í þessa matreiðslubók.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (213)

29 nóv. 2005 : Kökustríðið mikla

Maður hefur svosem oft heyrt um tertuslag eða séð hann í gamanmyndum en 30. nóvember er merkisdagur að því leyti að þá hófst Kökustríðið mikla, The Great Pastry War, árið 1838. Þetta ar ekki tertuslagur en þrátt fyrir nafnið er varla rétt að kalla þetta stríð. Þetta voru skærur á milli Mexíkó og Frakklands sem hófust eftir að franskur bakari í Mexíkó kvartaði yfir því að mexíkóskir hermenn hefðu eyðilagt bakaríið hans. Mexíkóstjórn neitaði að greiða skaðabætur, bakarinn kvartaði í frönsku ríkisstjórnina og hún sendi flotadeild til Veracruz. Franski flotinn hernam borgina um tíma en Bretar höfðu milligöngu um samninga og á endanum féllst Mexíkóstjórn á að greiða 600.000 peseta í skaðabætur. Ekki fylgir sögunni hvort bakarinn fékk þá peninga alla.

 Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (27)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði