Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

28 nóv. 2005 : Rúlluterta á forsíðum stórblaðanna ...

Great minds think alike,“ er stundum sagt og það kom einmitt í hugann þegar við hér á Gestgjafanum sáum forsíðuna á jólablaði matreiðslutímaritsins BBC Good Food 2005. Mörg undanfarin ár hefur jólabúðingur, enskar jólakökur eða annað slíkt prýtt forsíðuna og þær hafa verið hver annarri líkar. En í ár ber svo við að forsíðumyndin er af brúnni rúllutertu með ljósri fyllingu - alveg eins og var á kökublaði Gestgjafans.

Gestgjafablaðið kom reyndar út á undan - en við ætlum nú ekki að eigna okkur einkarétt á hugmyndinni. Það er aftur á móti bústin og falleg önd sem prýðir forsíðu jólablaðs Gestgjafans í ár.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (1)

28 nóv. 2005 : Jómfrúarolía

Hér á Gestgjafanum notum við mikið ólífuolíu, ekki síst jómfrúarolíu (virgin og extra-virgin). Það er ekki síst bragðsins vegna en við vitum líka að rannsóknir hafa þótt benda til þess að hún sé hollari en flest önnur fita og nú er búið að finna hvaða efni það eru sem gera hana heilsusamlega.

Auðvitað er best að draga úr allri fitunotkun en alltaf þarf þó að nota einhverja fitu og þá er góð ólífuolía afar heppilegur valkostur.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (168)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði