Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

24 nóv. 2005 : Verið með að velja!

Eru ekki fleiri sem vilja koma með uppástungur um rétti sem eiga heima í Bestu uppskriftir ársins 2005?

Ég verð líklega bara að hugga mig við að sennilega séu allir að bíða eftir jólablaðinu, sem er á leið til áskrifenda, til að hafa uppskriftirnar úr því með í púljunni.

Eða kannski höfum við bara ekki verið að gera góða hluti á árinu 2005.

Eða kannski staðfestist sá grunur minn að fólk kaupi ekki matarblöð til að elda upp úr þeim, bara til að skoða.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (1)

24 nóv. 2005 : Kalkúnadagurinn mikli

GE-0412-21-02_3Í dag borða 95% Bandaríkjamanna kalkúna (hinir eru sennilega flestir grænmetisætur) og það mætti því ætla að Bandaríkjamenn væru mestu kalkúnaætur í heimi. Svo er þó ekki - ekki nema miðað sé við heildarneyslu, því að hún er um 260 milljónir fugla á ári.

Meðalkalkúnaneysla á mann í Bandaríkjunum er hins vegar um 8 kg á ári en Ísraelsmenn hafa vinninginn, þeir borða yfir 20 kg á mann á ári. Í þriðja sæti eru Ungverjar með um 6,5 kg. Síðan koma Pólverjar, Kanadamenn og Mexíkóbúar.

Almennt er reiknað með að um 70% af fuglinum sé „hvítt kjöt“ (bringukjöt), enda hefur öll kalkúnaræktun áratugum saman miðast að því að fá bringuna sem stærsta og þykkasta og lærin sem minnst. Mesta furða að fuglarnir skuli yfirleitt geta staðið. Og þeir hlaupa allavega ekki á 30-35 km hraða á klukkustund eins og villtir frændur þeirra geta gert.

Nanna

 

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (2)

24 nóv. 2005 : Jólaflóðið

Mánuður til jóla ... Ég ætlaði að skrifa hér eitthvað um að það væri nú óþarfi að byrja jólastressið allt of snemma - eða byrja það yfirleitt - (mér skilst t.d. að börn á leikskólum séu mörg hver orðin illviðráðanleg vegna einhvers jólaspennings) - en svo áttaði ég mig á því að sjálf var ég í gær að skrifa um jólasíld svo að það er kannski eins gott að fljóta bara með í jólaflóðinu.

En jólablað Gestgjafans er komið úr prentsmiðju og verður dreift til áskrifenda á næstu dögum og síðan í verslanir eftir helgi.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði