Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Jólasíld
Ég er búin að vera að borða jólasíldina 2005 frá Ora síðustu dagana. Alveg ljómandi góð síld - kannski örlítið of sæt fyrir minn smekk en reyndar bara ef ég borða mikið af henni. En annars fín og mér finnst frábært framtak hjá Ora að koma með nýja jólasíld á hverju ári og kynna hana með stæl.
Hér er náttúrlega ekki sama síldarhefðin og í grannlöndum okkar en mér finnst samt síld tilheyra jólunum - eða reyndar ekki jólunum sjálfum, heldur jólaföstunni. Og Ora býður upp á ýmsar góðar tegundir af síld fyrir utan jólasíldina.
Ég skoðaði líka verksmiðju Ora á dögunum og það kom á óvart að sjá hve mikil framleiðslan er þarna, þótt hún kæmist að sjálfsögðu hvergi nálægt Sacla-verksmiðjunum, sem ég skoðaði í sumar. Hjá Ora minnir mig að þeir framleiði allt að 60-70.000 krukkur eða dósir á sólarhring; hjá Sacla líklega um 350.000.
En ég mæli semsagt með síldinni.
Nanna


