Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Kaffi-afmælisdagur
Kaffidrykkjufólk ætti kannski að halda upp á það að í dag er fæðingardagur ítalska grasafræðingsins Prospero Alpini, sem fæddist þennan dag árið 1553 í bæ nálægt Feneyjum. Það var nefnilega hann sem fyrstur kynnti kaffiplöntuna fyrir Evrópubúum (að vísu er alveg óvíst að hann hafi nokkru sinni drukkið kaffi sjálfur en það er annað mál). Sama máli gegnir um banana, hann er talinn hafa verið fyrstur Evrópubúa til að rækta þá og skrifa um þá.
Fyrsta kaffihúsið sem vitað er um var opnað í Istanbúl árið 1554, ári eftir fæðingu Alpinis, en hann mun hins vegar hafa kynnst kaffi þegar hann var í Egyptalandi. Fyrstu evrópsku kaffihúsin voru aftur á móti sennilega í Kraká í Póllandi seint á 16. öld eða snemma á 17. öld.
Nanna

