Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

21 nóv. 2005 : Bestu uppskriftirnar

Við erum að velja uppskriftirnar í sérblaðið Bestu uppskriftirnar 2005 eins og segir nánar frá í greininni á forsíðunni. Verið nú endilega dugleg að senda inn uppástungur um uppskriftir sem ykkur finnst eiga heima þar - það er hægt að senda póst eða koma með tillögur í athugasemdakerfinu hér að neðan.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (145)

21 nóv. 2005 : Sjálfvirk söltun

Það er svosem engin ný frétt að mikil saltneysla sé ekki holl en samkvæmt nýjum rannsóknum virðist hún hættulegri en áður hefur verið talið. Gallinn er að það er ekki nóg að nota lítið salt í og út á matinn sem maður eldar heima því að hjá mörgum er tilbúinn matur, snakk og þess háttar stór hluti af neyslunni og í slíkum mat er oft allt of mikið af salti.

 Nú veit ég ekki fyrir víst hver meðalneysla á salti er hjá Íslendingum en ætli hún geti ekki verið svipuð og hjá Svíum -12-13 g á dag, það er næstum teskeið af salti. Og sumir borða auðvitað mun meira.

Eitt sem ég hef samt aldrei skilið er fólk sem saltar matinn sinn án þess að smakka hann fyrst. Autocondimentors, eins og sonur minn segir og ég held að hann hafi eftir Lenny Henry, sem lék kokkinn í gamanþáttunum Chef. Það væri nú allt í lagi að smakka fyrst hvort þarf yfirleitt að salta ...

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (220)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði