Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Komin aftur ...
Einhverjir eru kannski farnir að halda að ég hafi ákveðið að snúa ekkert aftur frá Frakklandi og vissulega hefði það verið freistandi tilhugsun, það var svo gaman í þessari frábæru sælkeraferð og hún hefði alveg mátt vera lengri ... nema þá hefði ég líklega þurft að kaupa stærri fatanúmer.
En ég kom nú samt aftur á mánudagskvöldið og fór þá beint í að vinna að jólablaði Gestgjafans, sem fór loksins í prentsmiðju seint í gærkvöldi, stærra og veglegra en nokkru sinni fyrr, heilar 164 síður. Öll orkan hefur farið í það þessa tvo daga og nú get ég loksins farið að sinna vefnum aftur. Biðst innilega afsökunar á að hafa látið fyrirspurnir bíða. Þeim verður svarað í dag og á næstu dögum eftir því sem mér vinnst tími til.
Nanna

