Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

8 nóv. 2005 : Á lokasprettinum

Nú erum við á lokasprettinum með vinnu að jólablaðinu, það fer í prentun í næstu viku og það er óneitanlega nokkur áfangi. Blaðið verður líka stærra og veglegra en nokkurt jólablað hefur áður verið.

Ég ætla ekki að segja að jólin séu að verða búin hjá okkur en  við sjáum allavega fyrir endann á jólastressinu - svona hvað vinnuna varðar að minnsta kosti. Svo er ég búin að vera að gera litla matreiðslubók um jólamat, sem er farin í prentun og ætti að koma út í næstu viku. Það hefur auðvitað orðið til að auka jólastressið dálítið. En þetta er allt að verða búið og svo sjáum við fram á rólegri tíð fram til jóla. Þurfum auðvitað að vinna janúarblaðið - aðhalds- og sparnaðarrétti - og aukablaðið með bestu uppskriftunum 2005, en það verður mun léttara en síðustu blöð hafa verið.

Svo kem ég auðvitað til með að hafa meiri tíma til að sinna vefnum á næstunni.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (212)

8 nóv. 2005 : Er skyrið ostur?

GE-0509-68-01_3Ég þurfti áðan að finna smáupplýsingar um ákveðna tegund af osti og fór þá inn á www.cheese.com, sem er að mörgu leyti ágætis síða. Þarna er m.a. hægt að fletta upp eftir löndum og mér datt í hug hvað væri þarna að finna um íslenska osta. Satt best að segja þótti mér það heldur snautlegt, þarna voru taldir upp tveir ostar: Brauðostur og ávaxtaskyr.

Nú er auðvitað spurning hvort eigi að flokka skyr með ostum en útlendingar gera það allavega mjög gjarna. Hins vegar mundi ég nú taka eitthvað annað sem dæmi um íslenskan ost. Og þá allavega hreint skyr frekar en ávaxtaskyr.

Það er aftur á móti spurning hvaða osta ætti að velja ef maður þyrfti að nefna 2-3 osta sem dæmi um íslenska ostagerð. Hvað finnst ykkur?

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (218)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði