Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

7 nóv. 2005 : Þú ert það sem þú borðar ...

Kannski það sé eitthvað svona sem þarf til að berjast gegn offitu barna og unglinga: Sýna þeim hvað raunverulega er í skyndibitunum sem þau eru að borða. (Smellið á Enlarge Image til að sjá hráefnið í hamborgurum, pylsum og kjúklinganöggum.)

Mér fannst reyndar athyglisvert að sjá að 36% átta til fjórtán ára barna vita ekki að aðalhráefnið í frönskum kartöflum eru kartöflur. Sennilega er nú ástandið ekki svo slæmt hér - og þó, margir þekkja þær bara sem ,,franskar", kartöfluheitinu er svo oft sleppt og kannski eru krakkar hættir að gera sér grein fyrir hráefninu. Og 37% bresku krakkanna vissu ekki að ostur er unninn úr mjólk - það getur svosem vel verið að það sé svipað hér og osturinn sem margir krakkar borða mest af er náttúrlega ekki alvöruostur (þessi á pitsunum).

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (192)

7 nóv. 2005 : Fertugur afmælisdrengur

DoughboyAfmælisbarn dagsins er kannski ekkert sérlega vel þekkt hér en í Bandaríkjunum þekkir hvert mannsbarn hann þótt ekki viti kannski allir að raunverulegt heiti hans er Poppin' Fresh. Þetta er enginn annar en Pillsbury-deigdrengurinn. Fyrstu auglýsingarnar sem hann kom fram í voru einmitt sýndar í sjónvarpi 7. nóvember 1965.

Ég sé annars að Pillsbury er enn með bökunarkeppnina sína, The Pillsbury Bake-Off Contest, sem núna er haldin í 42. sinn. Mig minnir endilega að á 7. áratugnum hafi verið haldin íslensk Pillsbury-bökunarkeppni og jafnvel að uppskriftir sigurvegaranna hafi svo tekið þátt í amerísku keppninni. Man þetta samt ekki fyrir víst.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (121)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði