Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

6 nóv. 2005 : Lundúnafarar

Ef þið eruð á leið til London á næstunni og langar til að skoða betur ýmsar helstu verslunargöturnar áður en þið farið (t.d. til að finna suma af stöðunum sem nefndir eru í greininni London fyrir sælkera), þá getið þið athugað þessa síðu hér. Hérna er hægt að skoða götumyndir af fjöldamörgum götum í London, finna búðir og veitingastaði, lesa sér nánar til um þessa staði o.fl.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (161)

6 nóv. 2005 : Kalkúnaflóðið

Við höfum verið önnum kafin síðustu daga við að elda fyrir jólablað Gestgjafans og þótt lokaspretturinn sé eftir er vinnan langt komin og óhætt að segja að búið sé að elda mikið af steikum og hvers kyns kræsingum síðustu daga. Á föstudaginn var ég til dæmis í eldhúsinu allan daginn að elda kalkúna, endur og fleiri fugla - leist reyndar ekki alveg á blikuna þegar ég mætti snemma um morguninn og sá slökkviliðsbíl fyrir utan og svo var hópur vaskra slökkviliðsmanna að störfum innan dyra - en þeir voru reyndar að dæla vatni út en ekki inn. Vatnsleiðsla hafði bilað og vatn flæddi um gólfin - en tjónið var reyndar lítið og eldhúsið slapp alveg, svo að ég gat byrjað á kalkúnasteikingunni samkvæmt áætlun.

Vegna anna hef ég ekki komist yfir að svara fyrirspurnum samdægurs en reyni nú að gera bót á því og svara því sem safnast hefur upp.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (131)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði