Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

3 nóv. 2005 : Heimsmeistaramótið í grautargerð

Ekki veit ég hvort þið kannist við verkfæri sem á ensku kallast spurtle en mætti kannski kalla grautartein eða eitthvað slíkt á íslensku. Þetta er tréteinn sem notaður er í Skotlandi til að hræra í hafragraut. Ég á náttúrlega svona tæki og nota það auðvitað eingöngu til að hræra í hafragraut (þegar ég man eftir því - oftast gríp ég nú bara næstu sleif).

Heimsmeistaramótið í hafragrautargerð heitir einmitt The Golden Spurtle Championships og fór nýlega fram í 12. sinn í Skotlandi. Á heimasíðu keppninnar má finna heilmikinn fróðleik um grautargerð og fjölda uppskrifta.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (15)

3 nóv. 2005 : Samlokudagurinn

Það er samlokudagurinn í dag. Afmælisdagur Johns Montague, fjórða jarlsins af Sandwich. Sagt er að samlokan (sandwich) sé kennd við hann á ensku. Hann var mjög ákafur fjárhættuspilari og til að þurfa ekki að standa upp frá spilaborðinu þegar hann var svangur lét hann færa sér kjötsneið á milli tveggja brauðsneiða.

Reyndar finnst mér frekar ólíklegt að engum hafi hugkvæmst þetta fyrr en svona er nú sagan og af einhverri ástæðu heita samlokur sandwiches á ensku. Kannski væri tilvalið að hafa grillaðar ostasamlokur í kvöldmatinn? Úr focaccia-brauði, kjallarabollum eða öðru slíku, ekki brauðsneiðum; smyrja þær með smjöri og kannski örlitlu sinnepi, leggja 2-3 skinkusneiðar og kannski svolítið af stökksteiktu beikoni á hverja, þykka ostsneið ofan á, pressa saman og grilla í samloku- eða mínútugrilli (eða á grillpönnu og hafa farg ofan á).

Svona til heiðurs jarlinum af Sandwich, hvort sem hann á það skilið eða ekki. Það eru 313 ár frá fæðingu hans í dag.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (11)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði