Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

2 nóv. 2005 : Matarsýning í London

Ef þið eigið leið til London í byrjun desember, þá langar mig að benda á að matarsýningin The Festive BBC Good Food Christmas Show er haldin þar í Earls Court-sýningahöllinni helgina 2.-4. desember. Þar er hægt að sjá allt sem tilheyrir enskum matarjólum, smakka á alls konar góðgæti, kaupa ýmis eldhústæki og fleira, sjá fræga kokka að störfum og fleira.

Ég fór á þessa sýningu í fyrra og hafði gaman af. Fékk að smakka margvíslegt ljúfmeti, keypti eitthvað af jólagjöfum og eitt og annað á jólaborðið hjá mér og safnaði fjölda hugmynda í sarpinn. Reikna með að fara aftur í ár.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (141)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði