Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

1 nóv. 2005 : Eplabökur og hamingja

„Góðar eplabökur eiga ríkan þátt í hamingjusömu heimilislífi,“ sagði breski rithöfundurinn Jane Austen einhvern tíma. Mér finnst vera dálítið til í þessu og þess vegna ætla ég að gera þátt um eplabökur og kökur fyrir Gestgjafann einhverntíma á næstunni.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (167)

1 nóv. 2005 : Eldhústól og hjátrú

Ég sá viðtal við hnífasmið í Innlit-Útlit áðan. Það var dálítið áhugavert en ég hjó eftir því að hann talaði um hjátrúna um að ekki mætti gefa hníf, heldur yrði að borga fyrir hann með smápeningi, sem séríslenska hjátrú - eða ég gat ekki skilið hann öðruvísi. Ég veit hins vegar ekki betur en þetta sé nokkuð alþjóðleg hjátrú, ég veit að þetta er þekkt í Bretlandi, á Írlandi, í Rússlandi og jafnvel í Indónesíu - og sennilega miklu víðar.

Sjálf hef ég reyndar bæði gefið hnífa og fengið þá að gjöf án þess að ég hafi orðið vör við að það hafi skorið á vináttubönd eða hvað það nú er sem hnífagjöfin á að gera. Ég reyndar ólst ekki upp við þessa trú sjálf og það er kannski þess vegna sem ég hef aldrei farið eftir þessu. Mér var hinsvegar sagt þegar ég var barn að það mætti alls ekki klippa mat með skærum, þá hætti maður að stækka - og mér var afskaplega lengi illa við að klippa mat, t.d. klippa kryddjurtir eða klippa kjúklingabein með kjúklingaskærum.

En ekki lengur. Mér er nefnilega alveg sama þótt ég stækki ekki meir.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (167)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði