Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Foreldrarnir hnupla hrekkjavökusælgæti
Hrekkjavakan er ekkert sérlega kristilegur viðburður - allt vaðandi í nornum, púkum, draugum og alls kyns dularverum - en trúaðir Bandaríkjamenn hafa fundið leið til að berjast gegn illum öflum og leyfa börnum sínum að fara í „trick-or-treating“ - þeir dreifa sælgæti sem er vafið í ritningargreinar.
Samkvæmt könnun sem nýlega var gerð í Utah kaupa 35% fullorðinna það sælgæti sem þeir halda sjálfir mest upp á og gefa börnunum, 28% kaupa það sælgæti sem er á tilboði en aðeins 16% kaupa það sem krökkunum sjálfum finnst best. Og yfir 90% foreldra viðurkenna að þeir hnupli sér nammi úr gotteríispokum barna sinna.
Nanna
Hrekkjavaka
Það er víst hrekkjavaka í dag. Reyndar sé ég enga sérstaka ástæðu til að fara að taka upp þá siði sem þeim degi fylgja hér, síst af öllu nammisníkjurnar sem tíðkast í Bandaríkjunum og kannski víðar. En ef einhverjir vilja efna til hrekkjavökuboðs fyrir krakkana í kvöld og vantar eitthvað til að gera með stuttum fyrirvara, þá er svosem ýmislegt hægt að gera.
Það má til dæmis baka múffur og skreyta þær með einhverjum drauga- eða hryllingsmyndum - tilvalið að nota skreytilitatúburnar sem ég minntist á hér fyrir nokkrum dögum (sjá líka kökublað Gestgjafans). Svo er hægt að bjóða upp á afhöggna fingur, til dæmis með því að búa til venjulegt ljóst smákökudeig, lita smábút af því með rauðum matarlit, rúlla fingurlanga vindla úr deiginu, skella rauðum bút á annan endann og setja möndluflögu á hinn (eins og nögl). Annar möguleiki er að nota pylsur og tómatsósu í afhöggnu fingurna.
Kóngulær má búa til úr sykurpúðum og lakkrísreimum og drauga úr sykurpúðum - bara skreyta þá með augum úr súkkulaðidropum. Viðeigandi drykkur gæti svo verið Sprite, litað með grenadine eða rauðum matarlit.
Fleiri hugmyndir má svo finna hér.
Nanna


