Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Ostakartöflur
Er ekki veðurspáin svipuð fyrir morgundaginn? Þá sting ég upp á einföldum kartöflurétti, annaðhvort með afganginum af sunnudagssteikinni eða bara einu sér með grænu salati og góðu brauði. Ef óskað er eftir meiri gratín-svip á þessu má líka hita grillið í ofninum og setja pönnuna undir það þar til osturinn er bráðinn og farinn að taka lit.
Ostakartöflur
600 g kartöflur (Gullauga eða rauðar), 2 msk ólífuolía, 50 g smjör, 1 laukur, skorinn í þunnar sneiðar, 1-2 hvítlauksgeirar, pressaðir, ferskt eða þurrkað timjan, nýmalaður pipar, salt, 125 g ostur, t.d. óðalsostur, skorinn í sneiðar.
Kartöflurnar skornar í þunnar sneiðar (afhýddar fyrst ef hýðið er þykkt, annars ekki). Olía og smjör hitað á pönnu og laukur og hvítlaukur látin krauma í nokkrar mínútur. Kartöflurnar settar á pönnuna, kryddað með timjani, pipar og salti og látið krauma smástund; hrært oft á meðan. Síðan er lok lagt yfir og látið malla við vægan hita í um 25 mínútur, eða þar til kartöflurnar eur meyrar. Ostinum dreift yfir, lokið aftur lagt ofan á og látið krauma í nokkrar mínútur, eða þar til osturinn er bráðinn.
Það er auðvitað hægt að krydda þetta á ýmsan hátt, hafa eitthvert annað grænmeti með og jafnvel beikon eða skinku.
Nanna


