Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Skrontsalan
Ég fór aftur á markaðinn þar sem verið er að selja gamla Þorsteins- Bergmann-lagerinn („skrontsöluna“ eins og dótturdóttir mín kallar þetta) og sá þar ýmislegt sem ég missti af þegar ég var þar fyrir tveimur vikum. Ekki endilega vegna þess að mér hafi yfirsést það þá, heldur er stöðugt verið að bæta á. Það mætti halda að þessi lager væri óendanlegur - mér skildist reyndar að þarna væri enn eitt herbergi fullt af vörum sem lítið væri farið að setja fram á markaðinn og enginn vissi í rauninni enn hvað væri í þeim kössum. Ætli maður þurfi ekki að fara a.m.k. einu sinni enn? Mér skilst að það sé búið að framlengja markaðinn og hann verði opinn út nóvember.
Ég keypti reyndar aðallega hnífapör, mismunandi samstæð. Og nokkur misgagnleg verkfæri, þar á meðal eitt sem á bæði að vera hægt að nota til að þeyta sósur og búðinga og til að snúa hamborgurum á grilli. Ég hef alltaf verið dálítið hrifin af hlutum sem gegna fleiri en einu hlutverki og á til dæmis hvítlaukspressu sem er líka verkfæri til að steinhreinsa kirsiber og tæki til að hreinsa blöð af jarðarberjum sem má líka nota til að tína bein úr fiski.
Nanna
Flottheit í Skútuvoginum
Við fórum í gær í opnunarteiti nýju Blómavalsverslunarinnar í Skútuvogi, sem er tengd Húsasmiðjunni. Mjög flott húsnæði og vöruúrvalið virtist fínt - þarna var til dæmis töluvert af sælkeravörum, eins og var náttúrlega líka í gömlu Blómavalsbúðinni í Sigtúni, lífrænt ræktað grænmeti og fleira.
Jólaskraut og þess háttar var auðvitað mjög áberandi í hillum og þótt ég segi við mig á hverju ári að nú vanti mig alveg örugglega ekki meira jólaskraut grunar mig að ég eigi eftir að leggja leið mína í Skútuvoginn einhverntíma fyrir jólin og komi kannski ekki alveg tómhent til baka. Ég ætla samt ekki að fara alveg á næstunni, ég er í hættulega miklu jólaskapi eftir mikla jólaeldamennsku undanfarna daga og mundi örugglega falla fyrir einhverju sem ég hef svo ekkert að gera með ...
Það var kveikt á jólatrjám og jólaskreytingum þarna fyrir utan kl. 5 í gær og veðrið var náttúrlega alveg í stíl - erfitt að ímynda sér, þegar rennt var upp að versluninni, að það væri ennþá október.
En ég læt frekari heimsóknir í Skútuvoginn bíða um sinn, er aftur á móti að hugsa um að fara aftur á markaðinn hjá Lindinni í dag og athuga hvort ég finn ekki fleira dót sem ég hef ekkert pláss fyrir þar:
Nanna


