Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

28 okt. 2005 : Nokkur orð um ? staðstetningu uppþvottavélar

Þeir sem eru að innrétta eldhús þurfa að taka ákvörðun um mörg atriði varðandi skipulagningu og það er ekki endilega sjálfgefið að það þurfi að vera eins og gert er ráð fyrir í tillögum arkitektsins eða innréttingaverslunarinnar. Eitt af því sem getur þurft að ákveða er hvorum megin við vaskinn uppþvottavélin á að vera. Auðvitað eru mörg eldhús þannig að aðeins ein lausn kemur til greina og þá verður að sætta sig við hana - en þegar svo er ekki, hvers á þá að taka tillit til?

,,Það er augljóst," mundu sumir segja. ,,Þeir sem eru rétthentir ættu auðvitað að hafa uppþvottavélina hægra megin við vaskinn, hinir vinstra megin. Það er eðlilegra og fyrirhafnarminna, ef diskarnir eru skolaðir áður en þeir fara í vélina. Diskurinn fer úr hægri hendi yfir í vél sem er hægra megin."

,,Þetta er ekki rétt," segja aðrir. ,,Hugsaðu málið. Ef þú skolar diskana og ert rétthent, þá heldurðu á diskinum í vinstri hendi og skefur eða burstar matarleifar af honum með hægri. Ef uppþvottavélin er hægra megin, þá þarftu annaðhvort að færa diskinn yfir í hægri hendi til að setja hann í vélina, eða snúa þér fjórðung úr hring við hvern einasta disk til að stinga honum í rekkann. Það væri miklu þægilegra að hafa vélina vinstra megin."

,,Þetta er nú kannski ekki það sem mestu máli skiptir," segja enn aðrir. ,,Oft er engin þörf á að skola diskana, að ekki sé talað um glös og annað sem fer í vélina, og það þarf ekkert endilega að hugsa mikið um staðsetningu vasksins. Settu bara uppþvottavélina þeim megin sem þér finnst fara betur, eða þeim megin sem heppilegra er vegna lagna. Hafðu frekar annað í huga: Hvað verður um það sem þú tekur úr vélinni? Væri ekki nær að hugsa um það? Mikilvægast er kannski að glasa- og bollaskápurinn sé sem næst uppþvottavélinni, því annars þarf að selflytja þetta  í mörgum ferðum yfir í skápinn. Diskum og súpuskálum er hægt að stafla upp og flytja í einni ferð en glös og bollar geta verið erfiðari viðfangs. Hnífapörin skipta minna máli því oftast er hnífaparakarfan í uppþvottavélinni laus og hægt að hafa hana með sér að skúffunni og raða beint ofan í hana."

En ef fólki finnst skipta verulegu máli hvoru megin við vaskinn vélin er, og ef hjónin eru kannski ekki sammála um hvort er þægilegra (annað e.t.v. örvhent), þá er alltaf hægt að hafa tvær uppþvottavélar, sína hvorum megin við vaskinn - þá ættu allir að vera sáttir.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (215)

28 okt. 2005 : Skreytilitatúbur

Kökublaðið er nýkomið út en mér skilst að það sé þegar búið að hringja nokkrum sinnum í Gulu línuna til að spyrja hvar hægt sé að fá Cake Mate-skreytilitatúburnar sem við Úlfur dóttursonur minn notuðum til að skreyta súkkulaðimúffur í smákökuþættinum hans. Ég get hér með upplýst að það er SS sem flytur þetta inn, litirnir eiga að vera komnir í Hagkaup og verða fáanlegir á mun fleiri stöðum á næstu dögum.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (382)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði