Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

26 okt. 2005 : Unaðssemdir lífsins

„Ein af unaðssemdum lífsins er að borða með vinum, önnur er að tala um mat. Og svo má slá tvær flugur í einu höggi og tala um mat meðan setið er að borðum með góðum vinum," sagði Laurie Colwin, einn af mínum eftirlætishöfundum, í bók sinni Home Cooking.

Það er mikið til í því.

Laurie Colwin var kona sem þekkti unaðssemdir lífsins. Hún var líka rithöfundur sem skrifaði skáldsögur, smásögur og svo tvær bækur sem eru sambland af matreiðslu- og endurminningabækur - eða það mætti kalla þær matarminningabækur með uppskriftum: Home Cooking og More Home Cooking. Þetta eru frábærar bækur. Þær uppskriftir sem ég hef prófað úr þeim eru reyndar mjög góðar en það er ekki uppskriftanna vegna sem ég les þær. Sögurnar hennar eru bara svo yndislegar.

Ég er viss um að hún hefði haldið áfram að skrifa fleiri slíkar perlur en núna í vikunni eru rétt þrettán ár síðan hún dó, langt um aldur fram - reyndar nákvæmlega jafngömul og ég er núna - og  ég verð að láta mér nægja að lesa bækurnar hennar aftur og aftur og óska þess að þær væru fleiri og þykkari.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (160)

26 okt. 2005 : Spurningar sem bíða

Síðustu dagana hefur nánast allur tími minn farið í myndatökur vegna lítillar matreiðslubókar sem við erum að gera og ég hef því ekki haft tíma til að svara öllum fyrirspurnum. En nú er tökunum lokið og ég ætti því að geta svarað því sem fyrir liggur í dag og á morgun.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (197)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði