Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

22 okt. 2005 : Gleðilegan vetur

Er nokkuð út í hött að óska fólki gleðilegs vetrar? Það held ég ekki. Kannski enn meiri ástæða til að óska gleðilegs vetrar en gleðilegs sumars, sumarið er einhvernveginn gleðilegri árstími ... það er að segja, þegar litið er framhjá jólunum og allri gleðinni sem þeim fylgir. Jólin eru mér ofarlega í huga þessa dagana eins og áður hefur komið fram.

Ég minnti á það í gær að það væri kjötsúpudagurinn í dag en reyndar eldaði ég nú ekki kjötsúpu, það var svo mikið til af mat af því að við erum að gera matreiðslubók og vorum að mynda fyrir hana hér í dag. Ekki vantaði samt lambakjötið, ég bauð fjölskyldunni upp á villijurtakryddað lambalæri og hangikjöt í kvöldmatinn. Forréttirnir voru reyktur lax og graflax, rækjukokkteill og kjúklingalifrarkæfa og eftirréttirnir ananasfrómas, súkkulaðibúðingur og heimagert konfekt (og sá yngsti fékk piparkökur). Já, rétt til getið, þema bókarinnar er klassískur jólamatur.

Þannig að hjá mér fer veturinn býsna vel af stað, allavega matarlega séð. Vona að svo sé einnig um ykkur.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

 
 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði