Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Kjötsúpudagurinn
Á morgun er fyrsti vetrardagur. Íslenskir sauðfjár- og grænmetisbændur hafa tekið saman höndum um að gera fyrsta dag vetrar að Kjötsúpudeginum og hvetja fólk til að gera það að hefð að elda kjötsúpu þennan dag. Mér finnst þetta afar vel til fundið; íslensk kjötsúpa er ævinlega góð en kannski aldrei eins og þegar kaldir vetrarvindar blása og því er tilvalið að heilsa vetri með stórum potti af kjötsúpu.
Uppskrift að íslenskri kjötsúpu má finna hér en svo er líka hægt að breyta til og prófa til dæmis þessa léttu útgáfu hérna, eða leita kannski til framandi landa og prófa þessa hér eða þessa. Fleiri uppskriftir er svo að finna í uppskriftasafninu og einnig inni á lambakjötsvefnum.
Nanna


