Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

20 okt. 2005 : Matur og (van)líðan

Breska blaðið Sunday Times birti á dögunum skemmtilega grein um það hvernig skap fólks og líðan hefur áhrif á hvað það borðar hverju sinni. Nú er ekki víst að allir séu sammála niðurstöðunum en þar má meðal annars lesa þetta:

MATARSKAP

Það sem maturinn sem þú borðar segir um tilfinningar þínar

Reiði - Kjöt

Depurð - Sætmeti, koffein

Huggunarþörf - Búðingur, ís

Einmana - Hrísgrjón, pasta

Streita, metnaðargirnd - Kartöfluflögur, sojasósa, laukur

Kynferðisleg ófullnægja - Kex, brauð

Afbrýðisemi - Hvað sem er hrúgað á diskinn

Það vekur reyndar athygli að hér eru eingöngu dregnar fram neikvæðar tilfinningar en ekki kemur fram hvað fólk borðar einkum þegar það er ánægt, glatt, hamingjusamt ...

Nanna

 

 

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

20 okt. 2005 : Megrunarráð borgarstjórans

„Besta leiðin til að grennast er að hafa munninn lokaðan, en það er afar erfitt fyrir stjórnmálamann,“ sagði Edward Koch, fyrrum borgarstjóri New York-borgar, einhverju sinni. Og bætti svo við: „Eða fylgjast með matnum sínum - fylgjast bara með honum, sleppa því að borða hann.“

Þetta eru reyndar hvorttveggja hin snjöllustu megrunarráð - kannski ekki þau auðveldustu að fara eftir, samt.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (214)

20 okt. 2005 : Kökublaðið fer að koma ...

GE-0411-08-04_3Það er alltaf ákveðinn áfangi hjá okkur hér á Gestgjafanum þegar kökublaðið fer frá okkur í prentsmiðjuna (þetta gildir reyndar ekki síður um jólablaðið). Við erum búin að vera að hræra og blanda og þeyta og baka og smakka og mynda kökur og ábætisrétti allan síðasta mánuð og nú er árangurinn kominn á blað og þið sjáið hann í næstu viku.

Kökublaðið í ár verður 148 síður, fullt af flottum uppskriftum og girnilegum kökum að vanda. Ég er sjálf með þátt um ostakökur, annan um rúllutertur og svo aðstoðaði ég Úlf dótturson minn við smákökubakstur. Guðrún Hrund segir frá því hvernig hún notar grunnuppskriftir til að gera mjög ólíkar kökur, Friðrika Hjördís er með þátt um hollustukökur - hveitilausar, sykurlausar, mjólkurlausar, eggjalausar og ég-veit-ekki-hvers-lausar og Hanna er með sykurlausar smákökur og sælgæti í Gómsætt án sykurs. Til mótvægis við þessa hollustu er náttúrlega fullt af dægilegum óhollustuuppskriftum í blaðinu þannig að allir ættu að fá eitthvað við sitt hæfi.

Og nú tekur jólablaðið við. Nema ég þarf að skjóta einni matreiðslubók svona inn á milli ...

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (223)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði