Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

19 okt. 2005 : Jóla-hvað?

Ég veit ekki hvort þið eruð - eins og ég - orðin svolítið þreytt á þessum hefðbundnu jólahlaðborðum sem eru ágæt út af fyrir sig en hvert öðru lík og yfirfull af matnum sem maður er hvort eð er að fara að troða í sig á jólunum. Satt að segja hef ég heldur reynt að forðast jólahlaðborð síðustu árin, ekki síst eftir að ég fór á eitt slíkt þar sem aðalrétturinn var kjöt sem var svo salt að það var óætt, nánast eina grænmetið var grænar baunir (sem kláruðust meira að segja í miðju kafi og ekki var bætt á) og eini fiskurinn var síld. Mér finnst síld góð en svo er ekki um alla og það eru til fleiri fiskar.

Þess vegna fannst mér mjög spennandi þegar strákarnir í Rauða húsinu á Eyrarbakka höfðu samband og báðu mig um hugmyndir að réttum á jólahlaðborð. Ég setti niður á blað óska-jólahlaðborðið mitt (meðal annars með smáhliðsjón af Þorláksmessuhlaðborðinu mínu) og sendi þeim og útkomuna má sjá í auglýsingu í Fréttablaðinu í dag.

Þarna verður náttúrlega eitthvað af þessum sígildu jólahlaðborðsréttum en líka gott úrval af léttum, óhefðbundnum réttum, meiri fiskur o.þ.h.

Mér líst bara nokkuð vel á þetta hjá þeim ...

Nanna

 

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (2)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði