Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

17 okt. 2005 : Súkkulaðistyrkur

GE-0404-Valrhona2_sukkulÞað eru til ýmsir mælikvarðar á styrkleika. Eða eins og einhvern tíma var sagt:

„Styrkur felst í því að geta brotið súkkulaðistykki í fjóra parta með berum höndunum - og láta svo nægja að borða bara einn þeirra.“

Ég er alls ekki viss um að ég mundi skora hátt á slíku styrkleikaprófi.

En nú man ég að ég á súkkulaðistykki frammi í eldhúsi. Kannski ég ætti að fara og prófa styrk minn.

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (12)

17 okt. 2005 : Hægfara og hraðfara matarblöð

Það er dálítið sérkennilegt að það virðist vera vonlaust fyrir áskrifendur að bresku matreiðslublöðunum að fá þau fyrr en fjórum til sex vikum eftir að þau koma út. Ég var t.d. áðan að fá inn úr dyrunum októberblöðin af BBC Good Food og Olive - hljómar kannski ekki svo illa en það vill svo til að októberblöðin koma ekki út í október, heldur í fyrstu viku september. Nóvemberblöð beggja tímaritanna komu svo út 5. október. Þriðja tímaritið kom líka í póstinum í dag. Það var nýsjálenska matreiðslublaðið Cuisine og maður gæti ætlað, miðað við sendingarhraðann á bresku blöðunum, að það hefði komið út um páskana. Ónei, þetta er nóvemberblaðið, kom úr prentsmiðjunni fyrir innan við tíu dögum og er þegar komið hinum megin á hnöttinn. Burðargjaldið sem ég borga fyrir þetta er litlu hærra en fyrir hægfarapóstinn frá Bretlandi.

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (232)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði