Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

14 okt. 2005 : Súkkulaðihúðuð skordýr

Ég hef áður minnst á að í Bandaríkjunum er að ég held hver einasti dagur ársins helgaður einhverri ákveðinni fæðutegund. Og í dag er víst National Chocolate Covered Insect Day - súkkulaðihúðuðu-skordýra-dagurinn. Hmm, ég er nú ekki viss um að sá dagur sé verulega þekktur og þeir eru liklega ekki margir sem halda upp á hann með því að bera fram súkkulaðihúðaðar pöddur.

Ég sá reyndar í fyrra að í ekki ómerkari búð en Fortnum og Mason í London er hægt að kaupa súkkulaðihúðaða maura. Ég keypti samt enga.

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (211)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði