Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

13 okt. 2005 : Um fyrirspurnir

Þetta er mesti annatími ársins hjá okkur hér á Gestgjafanum: Stærstu og þykkustu blöð ársins eru í vinnslu og alls konar aukaverkefni hellast yfir okkur. Við erum fáliðuð og það er oft erfitt að komast yfir allt sem þarf að sinna. Þess vegna hefur mér ekki alveg tekist að standa við það sem ég ætlaði mér, að svara öllum spurningum sem ég fæ mjög fljótt og helst samdægurs. Nokkrar spurningar bíða enn svars og ég vona að mér takist að svara þeim á morgun.

Sumum spurningum get ég auðvitað svarað samstundis og geri það. Sumt eru spurningar um efni úr eldri Gestgjafablöðum og ég svara þeim um leið og mér gefst tími til að fletta í gegnum blöðin. Tímafrekastar eru spurningar þar sem beðið er um uppskrift að einhverjum tilteknum rétti (eða sem líkist einhverju sem fólk hefur fengið einhvers staðar. Þá þarf ég að leita í einhverjum af mínum fjórtán hundruð matreiðslubókum og það sem ég finn er kannski allt annað en fólk var að spyrja um .. Ég svara auðvitað öllum slíkum fyrirspurnum ef ég mögulega get en bið fólk að hafa skilning á að það getur tekið tíma að finna líklega uppskrift. Formið á Spurt og svarað er líka þannig að það gerir ekki ráð fyrir skoðanaskiptum á milli spyrjanda og svaranda. Þess vegna væri langbest að fá slíkar fyrirspurninr á spjallborðið en ekki í  Spurt og svarað það gefur mér betra færi á að spyrja nánar út í uppskriftina og þá geta líka aðrir komið með tillögur og uppskriftir.

Ekki misskilja mig, mér finnst gaman að glíma við þetta og vil gjarna fá svona fyrirspurnir en það væri stundum þægilegra að fá þær inn á spjallborðið.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

13 okt. 2005 : Piparkökubakstur

Það mætti halda að einhver ruglingur hefði orðið í tímatalinu hér á Kárastígnum. Fyrsti vetrardagur er enn ekki runninn upp en það er pGE-0411-28-02_3iparkökuilmur um allt hús, hangikjötslykt í eldhúsinu, kertaljós, snjóföl úti ... en svona er það þegar maður vinnur á matarblaði, það sem verið er að gera í eldhúsinu endurspeglar ekki alltaf árstíðina nákvæmlega.

Dóttursonurinn er aðstoðarmaður við smákökubaksturinn. Hann fékk að gista og vakti mig klukkan hálfsjö í morgun, til í slaginn og ófáanlegur til að halda áfram að sofa. Baksturinn er svo spennandi.

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (101)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði