Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

10 okt. 2005 : Kvöldverður á Bakkanum

Ég borðaði kvöldmat áðan í Rauða húsinu á Eyrarbakka, sem er reyndar ekki verulega rautt þessa stundina þótt það standi til bóta. Ljómandi góður fiskur; þorskur, lúða og skötuselur. Verulega notalegt umhverfi og góð tilfinning.

Stundum finnst mér það helsti ókostur bílleysisins að geta ekki skroppið oftar út á land að borða kvöldmatinn.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

10 okt. 2005 : Súkkulaðiflóðið

GE-0411-04-05_2Við hér á Gestgjafanum erum í miklu bökunarstuði þessa dagana, þar sem við erum að ganga frá okkar árlega kökublaði. Þar verður margt girnilegt að vanda. Ég kom inn á skrifstofu hjá tveimur samstarfskonum mínum áðan og sá þvílíkar súkkulaðibirgðir þar í kössum og á borðum að það mátti heita að þær syntu í súkkulaðipolli.

Sjálf ætla ég hinsvegar að reyna að sneiða sem mest hjá súkkulaðinu þetta árið (gerði sérstakan súkkulaðiþátt fyrir blaðið í fyrra), held mig fremur við osta- og skyrkökur, smákökur og þess háttar ...

Hvern er ég annars að reyna að blekkja? Ég að sneiða hjá súkkulaði? Ætli það komi ekki einhvers staðar við sögu í því sem ég geri fyrir kökublað Gestgjafans þetta árið ...

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (53)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði