Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Jarðskjálftabirgðirnar á Kárastígnum
Í framhaldi af athugasemd við færslu um afganga hér neðar á síðunni: Ég held að ýmislegt af því besta sem ég hef eldað hafi einmitt orðið til þegar ég komst ekki eða nennti ekki út í búð og ákvað að elda bara úr því sem til er á heimilinu (eða í Gestgjafaeldhúsinu). Því er að minnsta kosti ævinlega vel tekið þegar við erum að vinna frameftir við að koma blaðinu í prentsmiðju og ég stend allt í einu upp og spyr: -Á ég ekki að gá hvað ég finn í ísskápnum?
Heima hjá mér á ég alltaf safn af niðursuðudósum með ýmsu innihaldi sem ég get gripið til þegar á þarf að halda: Tómata, ýmsar tegundir af baunum, maís, ávexti og fleira (en lítið um niðursoðið grænmeti og alls engar dósasúpur). Þetta er allt í ákveðinni hillu inni í búri og gengur undir nafninu jarðskjálftabirgðirnar. Það er vegna þess að fyrir mörgum árum ráku einhverjir vinir annarshvors barnanna minna augun í þetta niðursuðudósasafn og fannst það eitthvað sérkennilegt en fengu þá það svar að hún mamma vildi vera viðbúin Suðurlandsskjálfta eða öðrum náttúruhamförum.
Jarðskjálftabirgðirnar mínar hafa allavega oft komið sér vel og þarf ekki náttúruhamfarir til. Það er gripið til þeirra þótt ekkert alvarlegra steðji að en leti húsmóðurinnar og þær eru svo endurnýjaðar eftir þörfum.
Nanna


