Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Super Size Me
Ég er að horfa með öðru auganu á Super Size Me á Sirkus, myndina sem Morgan Spurlock gerði um það þegar hann reyndi að lifa á McDonalds-fæði í mánuð. Athyglisverð mynd. Auðvitað má segja að þeir séu fáir sem borða þrjár stórar máltíðir á McDonalds á hverjum einasta degi (þótt ég þekki einstaklinga sem hefðu örugglega ekkert á móti því að prófa) og auðvitað er hægt að fá eitthvað af sæmilega hollum mat á sumum skyndibitastöðum. En eins og Roger Ebert segir í gagnrýni um myndina: „Eating responsibly at McDonald's is like going to a strip club for the iced tea.“ Ætli þeir séu margir sem fara á skyndibitastaði hollustunnar vegna?
Ég fer á McDonalds stöku sinnum - sirka einu sinni á ári - en má ég þá frekar biðja um hamborgarana á Búllunni hjá Tomma, þeir eru þó alvöru. Annars er einhver besti borgari sem ég hef fengið þykkur og safaríkur lambahamborgari á básnum hjá Northfield Farm á Borough-markaðinum í London. Ég var reyndar sársvöng svo að það gæti spilað inn í - en góður var hann.
Nanna
Byltingarkjötbollur
Kjötbollurnar í gær voru alveg ljómandi góðar. Þetta var tilbrigði við uppskrift sem ég ætla að setja inn í Uppskrift vikunnar á forsíðunni núna á eftir, þegar ég er búin að átta mig á því hvernig á að skipta (ég gat allavega skipt um Hráefni vikunnar í gær svo að ég er ekki algjör auli).
Mér datt í hug þegar við vorum að borða kjötbollurnar bókin Outlaw Cook eftir John Thorne, sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Þar er kafli er heitir Meatball Metaphysics og er helgaður kjötbollum, sem Thorne segir að sé matur sem hafi stimpilinn „permanent culinary refugee status“ í vegabréfinu sínu.
Er til einhver frægur franskur kjötbolluréttur? Onei. Ítalir búa til kjötbollur en vilja eiginlega ekki kannast við það. Svíar eru eyðilagðir yfir því að kjötbollur eru það sem helst heldur nafni sænskrar matargerðarlistar á lofti utan heimalandsins (fyrir utan reyndar sænska kokkinn í Prúðuleikurunum).
Thorne segir líka frá Konstantín Paustovskíj, ungum stúdent sem skaut einn af ráðherrum Nikulásar 2. Rússakeisara til bana og var dæmdur til hengingar. Hann sagði, er hann heyrði dóminn, að það skipti sig engu þótt kjötbollumáltíðunum hans fækkaði um tvö þúsund.
Þarna eiga kjötbollur heima,segir John Thorne, meðal stúdenta og byltingarsinna. Maður sér fyrir sér skuggalega öngstrætiskrá í einhverri miðevrópskri borg, þar sem þefur af sígarettureyk, sterku tei og soðnu káli smýgur inn í hvern krók og kima og andrúmsloftið er gegnsýrt pólitískum eldmóði og þunglyndislegri kaldhæðni.Og kjötbollur eru eini rétturinn á matseðlinum.
Nanna

