Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Risagrasker
Öskubuska mundi nú alveg komast fyrir í þessu graskeri hér. En þá vantar mýsnar til að draga það.
Fást grasker í einhverjum búðum núna? Ég ætla ekki að fara í neina Öskubuskuleiðangra en ég á skolli góða uppskrift af graskerssnúðum sem mig langar til að baka.
Nokkur orð um ? afganga
Fyrst ég nefndi kjötbollur hér áðan, þá datt mér þetta í hug: Fyrir nokkrum árum vorum við, ég og einn kunningi minn, að spjalla saman um hvað það væri nú dýrt að lifa og hvað væri mikil eyðslusemi í gangi í þjóðfélaginu og hvað unga fólkið hugsaði lítið um sparnað og allt þetta sem fullorðið og ábyrgt fólk talar um þegar það er í bölsýniskasti.
„Til dæmis,“ sagði hann, „tek ég eftir því að alltaf þegar eru kjötbollur í matinn hjá okkur, þá eru 3-4 bollur í afgang og það þýðir ekkert annað en að henda þeim. Krakkarnir vilja ekki afganga.“
„Bíddu nú hægur,“ sagði ég. „Eru alltaf bollur í afgang? Það er auðvelt að sjá við því. Bara kaupa dálítið minna hakk og búa til 3-4 bollum minna.“
Þetta hafði honum greinilega ekki hugkvæmst.
„Nei, það gengur eiginlega ekki,“ sagði hann eftir nokkra umhugsun. „Ef krakkarnir skyldu vera óvenju svangir verður allt vitlaust ef ekki eru nógar bollur handa öllum.“
„Hmh,“ tautaði ég. „Á mínu heimili hefur ekki verið afgangur af kjötbollum síðustu fimmtán árin. Allavega ekki nema þegar ég hef viljandi gert of mikið. Þetta vita allir og fá sér bara heldur meira af kartöflum og grænmeti, eða pasta eða grjónum eða hverju öðru sem er með bollunum. Það fer enginn að æsa sig þótt hann hefði getað þegið einni bollu meira, það er ekki eins og neinn fari svangur frá borðinu.“
„Ertu að meina að við ættum þá að fækka bollunum og sjóða fleiri kartöflur?“ spurði hann. „En þá sitjum við bara uppi með kartöfluafganga í staðinn.“
„Í fyrsta lagi eru kartöflur töluvert ódýrari en kjöthakk og ef þú vilt endilega henda þeim er það minni sóun en ef þú hendir bollum,“ benti ég á. „Og svo er hægt að nota kartöflur í svo ótalmargt. Bollurnar geturðu hitað upp, eða skorið þær í bita og notað út í pastasósu, eða stappað þær dálítið og hrært þeim saman við risotto, eða notað þær í eggjaköku ?“
„Bíddu, bíddu,“ sagði hann og byrjaði að skrifa hjá sér hugmyndir.
„ ? en kartöfluafganga geturðu notað í allt þetta og miklu fleira, til dæmis alls konar súpur og pottrétti, blandað þeim saman við pylsubita eða steikt beikon og notað í gratín eða bökur, stappað þær og notað í brauð, skorið þær í sneiðar og raðað ofan á kjöthakk eða pottrétti, hellt mjólk eða rjóma yfir og gratínerað, raðað í eldfast fat, sett fisk og grænmeti ofan á og bakað, skorið þær í litla teninga, brúnað í olíu og borið fram með steiktu kjöti eða pylsum eða bara spæleggi, búið til biximat auðvitað ?“
„Já,“ sagði hann og hamaðist við að skrifa. „Það liggur við að ég fari heim og sjóði tvö kíló af kartöflum. Til að eiga örugglega afganga.“
Nanna
Hvað er í hádegismatinn?
„Ask not what you can do for your country, ask what's for lunch,“ sagði Orson Welles einhverju sinni. Ég er búin að steingleyma hvað ég pantaði mér í kvöldmatinn og hef á tilfinningunni að mig langi ekkert sérstaklega að vita það svo að ég ætla ekki að spyrja. Kvöldmaturinn er aftur á móti á hreinu: Ég ætla að búa til kjötbollur.
Nanna


