Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Sauðamessa
Hvernig væri að skreppa á Sauðamessu í Borgarnesi um helgina? Þar er greinilega eitt og annað áhugavert á dagskrá. Og boðið upp á íslenska kjötsúpu. „Ræktaðu tengslin við sauðinn í sjálfum þér“ - það finnst mér gott mottó.
Léttsúrsaðar gúrkur
Hér er afar einföld uppskrift að léttsúrsuðum gúrkum eða gúrkusalati sem er gott að hafa t.d. með kjötbollum eða buffi, eða bara með brauði, til dæmis ásamt kotasælu, tómötum, ólífum o.fl.
Léttsúrsaðar gúrkur
1 stór gúrka (eða 2 minni)
1 tsk salt
3 msk hvítvínsedik eða sérríedik
1-2 msk dill, saxað
nýmalaður pipar
Gúrkan skorin í tvennt eftir endilöngu og fræin skafin úr henni með teskeið. Síðan er hún skorin í þunnar sneiðar, annaðhvort þvert yfir eða svolítið á ská. Sett í sigti, salti stráð yfir og látið standa í 1/2-1 klst. Þá er gúrkan sett í skál, edikinu dreypt yfir og dilli blandað saman við. Kryddað með dálitlum pipar og borið fram.
Nanna
Vildi ekki hafa skyndibita á matseðli
Morgunblaðið er með frétt um að Rasmus Kofoed, yfirkokkur á Restaurant d'Angleterre í Kaupmannahöfn, hafi verið rekinn á föstudaginn var fyrir að neita að setja skyndibita, klúbbsamlokur og þess háttar, á matseðilinn. Hann fékk tíu mínútna frest til að taka saman dótið sitt og yfirgefa staðinn.
Kofoed ætti að vera lesendum Gestgjafans kunnur því að hann lenti í þriðja sæti í Bocuse d'Or-matreiðslukeppninni í Lyon fyrr á þessu ári og þá tók Sólveig ritstjóri viðtali við hann, sem birtist svo í blaðinu. Hann er einn þekktasti kokkur Danmerkur og brottreksturinn hefur því vakið töluverða athygli - ekki síst vegna þess hvert tilefnið var.
Kofoed hafði nýlega tekið við eldhúsinu á d'Angleterre ásamt vini sínum, Søren Ledet, sem áður var á Noma með René Redzepi (sigurvegara Food and Fun 2005). Þeir lærðu reyndar báðir á d'Angleterre á sínum tíma. Ekki fylgir sögunni hvort Ledet tók við stjórnartaumunum þegar Kofoed var látinn fjúka eða hvort hann fer á eftir honum.


