Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Dýrir kalkúnar
Þegar litið er inn á bandarísk matarspjallborð á netinu eru þar víða þræðir þar sem fólk stendur á öndinni yfir kalkúnunum hans Davids Rosengarten - ekki hvernig hann eldar þá, heldur hvað þeir kosta. Þarna er nefnilega verið að bjóða 10-13 punda kalkúna á 99 dollara, plús 20 dollara sendingarkostnað - sem þýðir að kílóið kostar allt að 1500 krónur. Það þætti ansi hátt meira að segja á íslenskan mælikvarða og algengasta athugasemdin sem ég sé um þetta er „fyrir það verð þyrfti nú allt meðlætið að fylgja og svo þarf hann bara að koma sjálfur og elda fuglinn og þvo upp eftir þakkargjörðarveisluna - þá væri ég kannski til í að borga þetta!“
Nanna
Buffaló-vængir 41 árs
Buffaló-kjúklingavængir eiga afmæli í dag ... Það var einmitt þann 3. október árið 1964 sem Teressa Bellissimo á Anchor-barnum í Buffalo í New York-ríki þurfti að búa til fljótlegt miðnætursnarl handa svöngum syni sínum og nokkrum vinum hans og það var fátt til í ísskápnum. Ég get persónulega vottað að það getur verið töluvert hvetjandi fyrir sköpunargáfuna að vera með hóp svangra stráka fyrir framan sig þegar maður er að elda.
Nanna
Fresturinn er til 1. nóvember
Vegna misskilnings var sett inn röng dagsetning í bréfið til áskrifenda þar sem þeim var sent lykilorðið - þar stendur að allir sem skrá sig fyrir 1. okt. verði með í happdrættinu. Þarna á að standa 1. nóv. Þeir sem skráðu sig um helgina eru því að sjálfsögðu allir með í pottinum - og líka allir sem skrá sig nú í október. Og svo fáið þið auðvitað allt uppskrifta- og greinasafnið líka!
Nanna


