Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Allt í einu glasi
„Aðeins Irish Coffee gefur manni alla fjóra undirstöðufæðuflokkana í einu glasi: áfengi, koffín, sykur og fitu,“ var einhverju sinni sagt. Nei, írskt kaffi er líklega ekki það hollasta sem hægt er að fá sér á svölu haustkvöldi en það er fátt sem yljar betur. Enda mun drykkurinn hafa orðið til árið 1942 á barnum í Foynes-flughöfninni á Írlandi (fyrirrennara Shannon-flugvallar) til að hressa farþega eftir langt og erfitt flug yfir Atlantshafið. Sagan segir að einhver farþeganna hafi spurt Joe Sheridan, skapara drykksins, hvort þetta væri brasilískt kaffi. „Nei, þetta er írskt kaffi,“ svaraði hann og það nafn hefur drykkurinn haft síðan.
Nokkur orð um ? arroz con pollo
Þegar ég var í menntaskóla eignaðist ég kryddhillu með heilum tólf kryddtegundum, sem þótti afar mikið í þá daga. Þessi mikla kryddeign vakti jafnan athygli þeirra sem komu í eldhúsið mitt og sumir veltu því mikið fyrir sér í hvað væri eiginlega hægt að nota allt þetta krydd og hvernig það bragðaðist nú.
Einn skólabróðir minn ákvað að slá margar flugur í einu höggi, skar sér þykka brauðsneið, smurði hana með hunangi og stráði svo vænni klípu af kryddi úr öllum tólf kryddglösunum á sneiðina og beit í. Gekk svo rólega að eldhúsvaskinum og fékk sér vatnssopa. Annar, sem hafði fylgst stóreygur með aðförunum, taldi þá að óhætt mundi að smakka og fékk sér líka bita af sneiðinni. Tók svo mikið viðbragð, rauk beint undir kranann og mátti heita að hann stæði þar og þambaði það sem eftir lifði nætur til að reyna að slökkva eldinn ... Núna mundi ég rétta honum jógúrt eða skyr, það virkar betur en vatnið. En það vissi maður auðvitað ekki þá.
En ég fór náttúrlega að gera tilraunir með þetta krydd og eitthvað það fyrsta „exótíska“ sem ég eldaði og fékk hrós fyrir var arroz con pollo, „hrísgrjón með kjúklingi“, alþekktur réttur sem til er í ótal útgáfum um allan hinn spænskumælandi heim að minnsta kosti. Því miður er ég löngu búin að týna uppskriftinni sem ég notaði, því að bókin sem hún var í datt snemma sundur í blöð. Ekki vegna þess að ég notaði hana svo mikið, heldur einfaldlega vegna þess að bókbandið var svo lélegt. Ég þarf reyndar að hafa upp á þessari bók aftur, eða að minnsta kosti arroz con pollo-uppskriftinni úr henni.
Ég man samt að sú uppskrift var nokkuð ólík þessari sem hér kemur, fleiri kryddtegundir, og svo var rétturinn bakaður í ofni. Þessi útgáfa er ættuð frá Kúbu og grunnurinn er dæmigert kúbverskt „sofrito“, þ.e. laukur, paprika og tómatar. Annars er þetta tiltölulega einfaldur réttur, það þarf bara að passa að grjónin brenni ekki við og bæta við svolitlu vatni ef þarf. Það er tilvalið að nota víðan, teflonhúðaðan pott eða pönnu en ef þið eigið stóran leirpott sem hægt er að setja á eldavél, þá er hann alveg ídeal. Ég á einn svoleiðis en fór reyndar ekki að nota hann fyrr en ég fékk gaseldavélina, það er eiginlega ekki hægt að nota hann á rafmagni.
Uppskriftina má finna hér: Arroz con pollo.


