Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Grænmetisdagur - en ekki hjá mér
Í dag er alþjóðadagur grænmetisæta (World Vegetarian Day). Ég mundi ekkert eftir því þegar ég ákvað kvöldmatinn, annars er aldrei að vita nema það hefði komið fram í aðalréttinum. Hjá Gestgjafanum finnum við vel fyrir því að grænmetisréttir verða sífellt vinsælli og ég vona að það skili sér dálítið inn í blaðið. Græna blaðið okkar, sem við höfum gefið út á hverju sumri í nokkur ár, er aðallega helgað grænmetisréttum og hefur selst vel og haust- eða uppskerublaðið, sem kemur þar á eftir, er einnig mikið grænmetisblað. Eins er töluvert um grænmetisrétti í klúbbablaðinu, sem er nýkomið út.
En ég mundi þetta semsagt ekki. Dóttursonurinn, sem hreifst mjög af nýútkominni lambakjötsbók ömmunnar, lýsti því yfir að hann vildi fá lambakjöt í kvöldmatinn og úr varð að ég keypti þykkar sneiðar af lambaframhrygg, brúnaði þær ásamt nokkrum beikonbitum og setti svo í lokað, eldfast fat inn í ofn ásamt lauk, blaðlauk, hvítlauk, gulrótum, tómötum, rósmaríni og dálitlu rauðvíni. Þarna mallar þetta í rólegheitum við fremur vægan hita í svona 2 1/2 tíma. Þetta er tilbrigði við uppskrift sem var í haustblaðinu og er líka í nýju bókinni. Með þessu á svo að vera kartöflustappa með basilíku og ólífuolíu og á eftir verður súkkulaðibúðingur - ég notaði uppskrift frá Uffe Elleman Jensen, sem er hér í uppskriftasafninu, en sleppti koníakinu.
Þetta ilmar allavega vel.
Loksins fékk ég að borða ...
Ég var í Bleika boðinu í gær, fjáröflunarkvöldverði Krabbameinsfélagsins sem matreiðslumannaklúbburinn Freisting stóð fyrir og ætlunin er að verði að árlegum viðburði. Allir sem að samkvæminu komu gáfu framlag sitt, vinnu, vörur og annað, til styrktar baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Hið sama var að segja um listamenn sem þarna komu fram en það voru m.a. leikkonurnar Þórunn Lárusdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir og María Ellingsen, sem var kynnir kvöldins, og söngvararnir Ólafur Kjartan Sigurðsson og Þóra Einarsdóttir, sem skemmtu gestum af mikilli list.
Freistingarstrákarnir stóðu sig ljómandi vel í eldhúsinu en á matseðlinum var m.a. saltfisks-brandade (fínna orð yfir plokkfisk, ef þið vissuð það ekki), tartar úr reyktri gæs með rauðrófum og eplum, ágætur humar með ýmsu góðgæti og gulróta- og kúmenský (froðukennd súpa, hefði mátt draga örlítið úr kúmennotkuninni). Aðalrétturinn var svo lambahryggvöðvi og lambanýra (ég hefði verið til í að fá aðeins meira af nýrunum, þau voru verulega góð), síðan epla- og kampavínshlaup, sem mér fannst eiginlega eftirminnilegasti rétturinn, og vanilluskyrfrauð með berjum. Svo var endað á kaffi og konfekti frá Hafliða í Mosfellsbakaríi.
Þetta var skemmtilegt kvöld og góð tilbreyting frá stressinu undanfarna daga - reyndar líka tilbreyting frá matseðlinum því að mér hafði ekki gefist tími til að borða kvöldmat næstu tvo daga á undan vegna vinnu við Gestgjafavefinn (ekki þar fyrir, lambakjötssmáréttirnir frá Skútunni, sem voru á boðstólum við opnun vefsins, stóðu fullkomlega fyrir sínu og ég var svosem ekki kvöldmatarþurfi eftir þær trakteringar). Þessi gourmet-veisla var því frábær endapunktur á það allt saman. Ólafur Ragnar, sem einmitt opnaði Gestgjafavefinn daginn áður, var heiðursgestur þarna ásamt Dorrit og frú Vigdísi og þegar mér var vísað til sætis við háborðið með þeim var ég að hugsa um að segja við Ólaf ,,við verðum að fara að hætta að hittast svona" - en ég hætti nú við það ...


