Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

30 sep. 2005 : Látið vita hvað ykkur finnst!

Mig langar til að hvetja áskrifendur Gestgjafans til að vera duglegir að gefa uppskriftum sem þeir hafa prófað úr uppskriftasafninu einkunnir og setja athugasemdir við þær. Þetta hjálpar okkur á Gestgjafanum til að gera betur og ekki síst hjálpar þetta öðrum til að finna góðar uppskriftir eða laga uppskriftir að sínum smekk. Við viljum ekki bara fá hrós fyrir það sem vel er gert  (þótt það sé alltaf gaman), við viljum líka vita af því ef ykkur líkar ekki við eitthvað í uppskriftunum eða ef það er eitthvað sem þið skiljið ekki eða finnst að mætti vera öðruvísi.

Þetta gildir ekki bara um þær uppskriftir sem þið hafið verið að prófa síðustu dagana, heldur líka um uppskriftir úr eldri blöðum sem eru að koma inn í safnið og á eftir að fjölga til mikilla muna á næstunni.

Nanna

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (243)

30 sep. 2005 : The Meatrix

Ég rakst á stutta teiknimynd um nútíma verksmiðjubúskap á vefrápi á dögunum: The Meatrix. 

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (970)

30 sep. 2005 : Bleika boðið

Í kvöld er það svo galadinner Krabbameinsfélags Íslands, Bleika boðið, sem haldinn er til styrktar baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Þetta er mál sem er okkur hér á Gestgjafanum hugleikið og ég mæti þarna sem blaðamaður og mun skrifa um þetta, væntanlega bæði hér á vefinn og í blaðið.

En það skemmir ekki að matseðillinn er nokkuð álitlegur. Það eru Freistingarmenn sem sjá um hann og hægt að sjá sýnishorn hér.

Varanleg slóð Lesa athugasemdir (179)

30 sep. 2005 : Smáathugasemd um athugasemdir

Ég ætlaðist til að athugasemdakerfið hér á Matarspjallinu væri opið fyrir alla en eins og er geta bara innskráðir áskrifendur tjáð sig - þessu verður breytt mjög fljótlega. Hins vegar geta allir tekið þátt í umræðum á spjallþræðinum.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði