Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Ekki Nýgella, heldur miðaldra ...
Fréttablaðið minnist á væntanlega opnun Gestgjafavefsins í smáklausu í morgun og segir meðal annars að ekki sé vitað hvort ég ætli að feta í fótspor Nigellu Lawson. Ehem, nei, það er ekki planið ... Ég hef ekkert í Nigellu að gera. Okkur var reyndar einu sinni líkt saman í grein í virtu bresku tímariti og var sá samanburður mér stórlega í hag en það skal tekið fram að annar aðalheimildamaður blaðamannsins um ágæti mitt var ég sjálf svo að það er ekki alveg að marka.
Nanna
Að sækja sér mat ...
Ég sá fyrirsögnina „Ipod food downloads“ inni á erlendu matarspjalli sem ég var að lesa áðan. Fannst það nú fullmikil bjartsýni en þá var víst bara verið að spyrja um efni sem tengdist mat á einhvern hátt.
En maður veit samt aldrei.


