Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Bjórvinir sem eiga leið ...
... til Colorado í Bandaríkjunum ættu að koma við á Bjórhátíðinni miklu sem stendur þar yfir 29. sept. til 1. okt. Þar verður hægt að smakka alls konar bjór, (það eru kynntar 1669 bjórtegundir á hátíðinni, frá 380 framleiðendum), hlusta á kokka spjalla um hvernig á að para saman bjór og mat og margt fleira. Það er semsagt ekki bara á Oktoberfest í Þýskalandi sem bjórvinir geta glaðst svo um munar þessa dagana.
Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt má svo benda á að Þorri Hringsson er með grein í októberblaði Gestgjafans þar sem hann fjallar aldrei þessu vant ekki um vín, heldur einmitt um bjór - þýskan bjór, nánar til tekið, í tilefni af Oktoberfest - og gefur uppskrift að þýskum rétti sem á einkar vel við með bjórnum.
Svo vitnað sé í grínistann Dave Barry: „Það er engin spurning að bjór er merkasta uppgötvun sem mannkynið hefur gert. Jú, ég skal viðurkenna að hjólið var líka fín uppfinning, en það á ekki nándarnærri eins vel við með pítsu.“
Nanna

