Matarspjall

Hugleiđingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á ađ segja skođun sína viđ hverja fćrslu.

19 sep. 2005 9:56 : Ostur ... eđa ekki

Ég var í verslunarferđ um daginn og vantađi rifinn ost. Í versluninni sá ég plastöskjur sem voru kyrfilega merktar ,,Rifinn ostur". Ég greip eina og ćtlađi ađ kaupa hana en ákvađ svo ađ athuga fyrst hvađa ostategund ţetta vćri. Ţegar ég fór ađ lesa innihaldslýsinguna sá ég mér til furđu ađ ţetta var alls ekki ostur, heldur ostlíki. Ţarna stóđ: Vatn, pálmafeiti, mjólkurprótein, smjör, bindiefni (E 452, E 339), sýrustillir (E 331), salt, bragđefni, litarefni (E 110).

Nú getur ostlíki veriđ ágćtis vara og víst er ađ Íslendingar hesthúsa ógrynni af ţví árlega, međal annars á pitsum og fleiru. En međ ţví ađ merkja ţessa vöru sem ost er veriđ ađ blekkja neytendur og ţađ er einfaldlega ekki leyfilegt, samkvćmt reglugerđ um merkingu, auglýsingu og kynningu matvćla, nr. 588 frá 1993.

Varanleg slóđ Lesa athugasemdir (151)

19 sep. 2005 9:49 : Basilíkan ţolir ekki kulda

Ef blöđin á basilíkunni verđa dökk er ţađ yfirleitt merki um ađ hún sé á of köldum stađ. Basilíka ţolir ekkii mikinn kulda og hitinn á helst alls ekki ađ fara undir 7°C. Hiđ sama gildir um afskorin basilíkublöđ og greinar. Fyrst eftir ađ ég fékkk mér ísskáp međ Biofresh-kerfi, ţar sem hitastigiđ í grćnmetisskúffunni er mjög lágt, setti ég allar fersku kryddjurtirnar sem ég keypti í hana. Sumar geymdust von úr viti en ekki basilíkan, hún skemmdist mjög fljótt. Núna geymi ég hana á öđrum stađ í ísskápnum og hún heldur sér mun betur.

Nanna

Varanleg slóđ Lesa athugasemdir (127)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla međ sesamosti

Hrefnukjöt fćst núorđiđ í stórmörkuđum áriđ um kring en ţađ er sannkallađ sćlkerafćđi og ekki spillir ađ ţađ er á góđu verđi. Nota má reykta villibráđ eđa hangikjöt í stađ reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Ţessi vefur byggir á Eplica - Vefsvćđi