Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Hvað er mikið í einum bolla? Bolli af blómkáli?
Þegar eldað er eða bakað eftir bandarískum uppskriftum lendir fólk stundum í vandræðum með mælieiningar. Bandaríkjamenn nota bollamál mjög mikið og stærðin er að sjálfsögðu stöðluð – einn bolli svarar til 237 ml. Yfirleitt er þó ekki þörf á svo mikilli nákvæmni og ef í uppskriftinni segir einn bolli er því gjarna breytt í 250 eða 225 ml (2 1/2 eða 2 1/4 dl). Staðlað íslenskt bollamál er hins vegar ekki til og þetta veldur því oft ruglingi.
Ýmislegt sem Bandaríkjamenn mæla gjarna í bollum, svo sem saxað grænmeti og ávexti, mælum við frekar eftir vigt eða í stykkjatali. Hér er listi yfir nokkrar algengar hráefnistegundir:
1 amerískur bolli er um það bil:
1 bolli apríkósur, þurrkaðar — 150 g
1 bolli bananar, stappaðir — 2 meðalstórir
1 bolli blómkál, skipt í litla kvisti — 150 g
1 bolli epli, rifin eða söxuð — 1 meðalstórt
1 bolli flórsykur — 160 g
1 bolli gulrætur, rifnar — 1 1/2-2 meðalstórar
1 bolli hnetur, grófsaxaðar eða muldar — 125 g
1 bolli hveiti — 140 g 1 bolli hvítkál, skorið í ræmur — 125 g
1 bolli jöklasalat, rifið eða saxað — 60 g
1 bolli kjöt, soðið, í bitum — 150-175 g
1 bolli kotasæla — 200 g
1 bolli laukur, saxaður — 2 meðalstórir
1 bolli maískorn — korn af 2 kólfum
1 bolli ostur, rifinn — 125 g
1 bolli paprika, söxuð — 1 stór
1 bolli púðursykur — 175 g
1 bolli smjör — 225 g
1 bolli spergilkál, skipt í litla kvisti — 80-100 g
1 bolli sveppir, saxaðir — 80-100 g
1 bolli sykur — 225 g
1 bolli tómatar, saxaðir — 2 meðalstórir
Svona listi verður auðvitað aldrei nákvæmur en það er gott að hafa hann til hliðsjónar.
Nanna
Tepokapressa
Alvöru tedrykkjufólk notar auðvitað ekki tepoka ... en þeir sem gera það kannast örugglega við vesenið sem fylgir því að lyfta tepokanum upp úr þegar drykkurinn er tilbúinn. Maður þarf að bíða þolinmóður og halda pokanum á lofti yfir bollanum þar til allt umframte hefur dropið úr honum eða setja pokann í skeiðina, vefja strengnum utan um og kreista.
Þarna kemur tepokapressa sér sannarlega vel, það þarf bara að grípa utan um pokann með tönginni og pressa. Og svo er reyndar hægt að nota pressuna til annarra hluta líka. Þetta er til dæmis handhæg töng þegar meðhöndla þarf kökubita á borð við brownies og það er líka hægt að nota hana þegar grípa þarf utan um eitthvað heitt. Tepokapressan fæst í Húsgagnahöllinni og kostar 290 krónur.


